noyan wrote:Spiderman wrote: Mín skoðun er sú að BMW helst illa í verði miðað við aðra lúxusbíla og það sést bara best á E39 M5.
Það var grein í vor í bílablaði morgunblaðsins sem kemur á föstudögum þar sem kom fram að BMW héldist einmitt best í verði í flokki lúxusbifreiða á Íslandi... það getur verið að ég eigi þessa grein einhversstaðar ég skal henda henni inn ef ég finn hana.
Kannski hugsa ég þetta bara of mikið út frá Porsche en ef við berum saman E39 M5 og 996 sem eru að mörgu leyti sambærilegir bílar, þrátt fyrir að M5 hafi verið 80 hestöflum kraftmeiri þá kostuðu þeir nánast það sama árið 2000 en í dag þá fengi Porsche eigandinn 2 millum meira fyrir sinn bíl en sá sem keypti M5. SL500 helst líka töluvert betur í verði en M5. BMW helst vel í verði miðað við aðra lúxusbíla en þegar menn eru farnir að banka í 10 milljón króna múrinn þá er endursöluverð Porsche og SL línunnar miklu betra.
