Eggert wrote:
Myndi halda að þetta væru góð kaup. Auðvitað er alltaf skemmtilegra að hafa stærri vél... blæjan bætir manni það upp.
BMW + blæja fyrir 1.5m er ekki mikið.
Mér finnst þetta skuggalega hátt verð, Z3 eru yfirprísaðir til dauða og ásetta verðið á þeim virðist bara hækka hjá þessum sérfræðingum. Hver kaupir grútmáttlausa 7-8 ára gamla bíla fyrir 1,5 milljón

800-900 þús væri nærri lagi. Ef við berum þetta saman við bíla í sama flokki sem kostuðu það sama nýjir eins og t.d MR2 og Miata þá hefur mátt fá 2-3 ára gamla slíka bíla fyrir það sem menn vilja fá fyrir gömul sjoppuleg eintök af Z3. Ég hef fylgst með notuðum Z3 undanfarin 6 ár og ég man eftir 3 bílum sem fóru á virkilega góðu verði og þar af fór einn á milljón fyrir um 3 árum síðan.
Varðandi þennan fjólublá þá bauð ég í hann 1200 þús fyrir 2 árum en eigandinn hafnaði því og seldi núverandi eiganda bílinn. Þessi bíll var grænn einu sinni en var sprautaður í þessum lit vegna þess hve upprunalegi liturinn var ljótur. Ég skoðaði hann í fyrradag og mér fannst hann hálf sjoppulegur eitthvað, gat eftir hníf eða annað í afturrúðunni sem var búið að teipa yfir og svo var sprungið á einu dekki og bíllinn var skítugur. Ekki beint eins og ég myndi skilja við minn bíl á bílasölu.
Ég svolítið pælt í fá mér Z3 en ef allir þessir eigendur eru svona uppí skýjunum þá myndi ég miklu frekar panta nýjan 2 lítra Z4 á rúmar 3 millur en að borga 1,5 millu fyrir Z3 búðing

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991
Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual