gamall karl sem er að vinna með mér á 94 árg af 525ix, bíllin hefur lengi vakið smá athygli hjá mér en hann hann lýtur alveg sérstaklega vel út, og ég veit að þessi maður er búinn að eiga hann lengi, bíllin er alltaf geymdur inni í skúr á nóttini yfir vetrartíman og á sumrin ef ekki viðrar vel.. og virðist aðalega vera fyrir frúnna í vinnuna og í sunnudagsbíltúrinn, en eigandin er atvinnubílstjóri, hann keypti bílin árið 96 þá ekin rúmlega 90þúsund og núna 7árum seinna er hann á milli 130 og 140 og það merkilegasta er að núna fyrir 2-3vikum var skipt um framdempara í honum og er það fyrsti hluturinn sem er nokkurntíman hreyft við í bílnum

eigandin segir þetta besta bíl sem hann hafi nokkurntíman komist í tæri við, hann segist nú vera búinn að spá dáldið í að selja hann en það sem stendur í vegi fyrir því er að það fæst engin sona bíll í dag

þess má kannski líka geta að hann hefur eingöngu átt bmw síðan 72 minnir mig að hann hafi sagt.