dough!

Hér skal spjalla um BMW.

dough!

Postby ta » Thu 22. Sep 2005 01:16

af mbl.

Fór í bíltúr
Upp komst um norskan bifvélavirkja, sem stóðst ekki freistinguna þegar hann fékk rallbíl til viðgerðar og fór í ökutúr. Upplýsingar, sem geymdar voru í GPS-staðsetningarkerfi bílsins, sýndu að bílnum hafði verið ekið á 180 km hraða.

Norska fréttastofan NRK segir að maður nokkur hafi komið með Subaru Impreza WRC rallbíl inn á verkstæði í Kongsberg vestur af Ósló í síðustu viku og beðið um að undirvagninn yrði yfirfarinn. Hafði maðurinn verið að keppa á bílnum og lenti út af veginum.

Nokkrum tímum síðar kom maðurinn og sótti bílinn og fékk að vita að allt hefði verið í lagi. En skömmu síðar sá bíleigandinn, að bremsudiskarnir í bílnum voru dökkbláir, sem benti til þess að honum hefði verið ekið mjög hratt. Með því að kanna upplýsingar og hraða, staðsetningar og ökutíma, sem geymdar voru í GPS staðsetningarkerfi bílsins, kom í ljós að bifvélavirkinn hafði skroppið í ökutúr á bílnum og ekið á allt að 180,6 km hraða á vegi þar sem hámarkshraði var 80 km.

Lögreglan svipti bifvélavirkjann sem er 21 árs ökuréttindum á meðan málið er rannsakað frekar. Maðurinn gæti einnig átt yfir höfði sér fangelsisdóm.
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby IceDev » Thu 22. Sep 2005 01:20

Vonum að svona ökuritar séu ekki framtíðin :x
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby Eggert » Thu 22. Sep 2005 01:56

IceDev wrote:Vonum að svona ökuritar séu ekki framtíðin :x
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Logi » Thu 22. Sep 2005 08:04

:lol: :lol: Djöfull var þetta gott á'ann :lol: :lol:
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby gunnar » Thu 22. Sep 2005 09:29

Bwhahah "réttlætinu náð"...
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Helgi Joð Bé » Thu 22. Sep 2005 23:40

Össs... ef ég fengi einhvern svaka rallý bíl í henduranr myndi ég örugglega gera það sama :wink:
BMW 730IA '94, E32, Vaff 8
User avatar
Helgi Joð Bé
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 58
Joined: Thu 25. Mar 2004 00:22
Location: Reykjavík

Postby Helgi M » Fri 23. Sep 2005 08:23

Hehe bösted marrr :D
Ekki nógu margir
User avatar
Helgi M
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 494
Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Location: Reykjavík


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 42 guests