bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 09. Jun 2025 12:09

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 16 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 22:32 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Mér datt þetta í hug í framhaldi af sexu spjallinu.

Það eru ákveðinn atriði sem eru alltaf hin sömu í M bílum, allavega í M3 og M5 og má þar helst nefna M merki í mælaborðinu, rauðar nálar og svarta klæðningu í loftinu og svo eru önnur atriði sem eru mismunandi á milli gerða (E30, E36, E34 og E39).

Mér datt því í hug hvort einhver hér vissi hvort það væri rauðar nálar á mælunum í M635i og850CSI??? Þessir bílar eru alltaf taldir með M bílunum þó þeir hafi ekki fengið heiti á sama hátt og M3 og M5 nema náttúrulega M6 sem var víst bara notað í USA.

Nálarnar gætu því hiklaust bent til þess að BMW hafi álitið þessa bíla sem M bíla án þess að nefna þá eins og hefðbundið er orðið.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:04 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Posts: 521
Location: Reykjavík(Selás)
M635csi mælaborð,
Image sýnist ekki.

M535ia(veit ekki hvort þetta a skifti máli) mælaborð,
Image sýnist ekki.

850csi mælaborð,
Image ef þið lítið mjög vel þá sjáið þið rauðu nálarnar.

Allar myndirnar fann ég á mobil.de þannig að ef þær hverfa þá er búið að selja bílana =)

_________________
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:05 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Posts: 521
Location: Reykjavík(Selás)
svarar þetta spurningu þinni.

_________________
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:10 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Já, þetta var reyndar nokkuð forvitnilegt!

Svo er náttúrulega spurning hvort þeir hafi verið byrjaðir á þessu með rauðu nálunum þegar sexurnar voru smíðaðar og fyrsti M5 bíllinn (E28).

Þetta var verulega forvitnilegt...

Allt í einu varð ég verulega hrifinn af 850 CSI.... Tólf strokka M bíll.... NOT BAD!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:12 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Samkvæmt þeim bókum sem ég hef, þá ber þeim saman um að 850csi með rauðum nálum, E30 og E36 M3 líka, en ekki M635csi né E28 M5.

Þannig að það er greinilega ekki sammerkt að rauðar nálar séu á M bílum!

Sæmi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:15 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Posts: 521
Location: Reykjavík(Selás)
bebecar wrote:
Allt í einu varð ég verulega hrifinn af 850 CSI.... Tólf strokka M bíll.... NOT BAD!


McLaren F1 er tólf strokka (næstum)M bíll (meira að segja S70 vél í honum líka)

_________________
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:23 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Nei, mér datt það einmitt í hug að þeir hafa ekki verið búnir að fatta að hafa þetta svona þegar fyrsti M5 kom og svo sexan....

Hmmm, er McLaren F1 með rauðar nálar :lol:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:33 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Posts: 521
Location: Reykjavík(Selás)
það er spurning...

_________________
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:47 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Posts: 521
Location: Reykjavík(Selás)
Breytti m1'inn sem verið var að tala hér um,
Image

Rauð snúnings nál en ekki hraða nál, spurning hvort þetta fylgi breytingunni.

McLaren F1 LM,
Image
Er ekki með rauðum nálum og ég efast þá að hinir séu þá með rauðar.

_________________
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:49 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Déskoti er hann svalur að innan!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 20. Apr 2003 23:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Maclaren F1 var líka fáanlegur með svartar nálar, ekki bara hvítar eins og á myndinni. Fyrir þá sem ekki vita það, þá töpuðu þeir á hverjum einasta bíl sem þeir seldu þrátt fyrir gígantískt verð. Það er (var allavega) einn til sölu rétt hjá Hyde Park í London í síðari hluta mars mánaðar, ekkert verð gefið upp.

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 21. Apr 2003 10:20 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
saemi wrote:
Samkvæmt þeim bókum sem ég hef, þá ber þeim saman um að 850csi með rauðum nálum, E30 og E36 M3 líka, en ekki M635csi né E28 M5.

Þannig að það er greinilega ekki sammerkt að rauðar nálar séu á M bílum!


Enda er E28 M5 líka Über Stealth! ;-)

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 21. Apr 2003 12:17 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Posts: 2725
Location: Hafnarfjörður
Þess má svona til gamans geta, af því að verið var að tala um vélina í McLaren F1. Að ég las í reynsluakstursgrein í Performance Car fyrir nokkrum árum að annað heddið í McLaren vélinni væri dýrara heldur en komplett vél í 750i :shock: Þar kom einnig fram að það væru tveir spíssar á hvern strokk. Annar frá hægagangi upp í 3500 sn/mín og hinn frá 3500 og uppúr!

Ég held að þetta segji nú allt sem segja þarf um það hversu mikið var lagt í þessa bíla!

_________________
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 21. Apr 2003 12:28 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Posts: 1690
Location: BIRK
M bílarnir eru algjör snilld.

Ég er búinn að prufa gamla M3 (e30 boddý) og fékk þann heiður að fara smá túr með E34 M5 (gamli M5 Bebecar) í gærkvöldi 8)
M3 E30 er algörlega hugsaður sem race bíll, helvíti stífur (einum of eiginlega) og helv... lággíraður -enginn vandi að setja hann í spól.
Það var mjög gaman að keyra þann bíl (bíllinn hans Birkis) en einum of mikið race bíll fyrir minn smekk :?
EN síðan þegar ég fékk að setjast í M5 E34 bílinn þá fann ég skemmtilegasta sportbíl sem ég hef setist í, þó ég hef nú setið í þeim nokkrum. Vélin vill bara ekki hætta vinnslunni, á hvaða snúningi sem er þá þrykkir hún manni í sætið. Við vorum meira segja fjórir í bílnum og stundum upp brekkur en hvílíkt power 8) Liggur eins og skata og geðveikt firm á veginum (þó hann sé á nokkurs konar vetrardekkjum :wink: )
Alveg laus við vindgnauð á xxx hraða!!!!

Maður vorkennir þér bara bebecar að hafa þurft að selja bílinn, en hann fór pottþétt til góðan eiganda

_________________
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 21. Apr 2003 13:08 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Jebb... maður vorkennir sér líka. En ég held að við hefðum ekki getað gert betri skipti. Báðir bílarnir þurftu góðan eiganda! :wink:

En síðan má ekki gleyma því að þetta er góður M5 - ekkert brak 8)

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 16 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group