bebecar wrote:
Veit einhver ykkar hvort Porsche 911 Cabriolet er 4 sæta eða tveggja sæta?
Ég er búin að leita út um allt og ég get hvergi séð upplýsingar um þetta!
Þú kemur mér alltaf á óvart! Nýkominn með barn númer tvö og ert þá byrjaður að spá í Porsche 911 Cabrio. Talandi um bílaáhugamann!
Allaveganna, það vill svo til að það er hérna fyrir utan hjá mér, í Svíþjóð, Porsche 911 blæjubíll, ca. '83. Kannski ég reyni að hitta á hann og spjalla við hann, fæ hann kannski til að taka mig á rúntinn.

Ég leit vel inn í hann núna rétt áðan. Plássið að aftan virðist sama og ekkert. Það er sama hvaða árgerð, plássið að aftan er bara brandari. Síðan þegar blæjan fer niður þá minnkar plássið enn þá meira aftur í.
Hvers vegna hélstu annars að þú hafðir ekki séð neina mynd af 911 Cabrio aftur í?
Hvers vegna verður þetta að vera cabrio? Hvers vegna ekki targa? Ertu að tala um ákveðinn bíl eða bara almennt? Hvaða árgerð? Ca. verð?