Runkiboy wrote:
Jæja piltar. Þá er komið að því. Þið eruð búnir að fá kónginn til liðs við ykkur.
Var að fá mér BMW 525 IA árg 1995. Hann er ekinn 166xxx þús.
Það er leður og læti í honum og toppur á honum hreyfist eitthvað
og fullt af einhverju dæmi sem ég hef ekki hugmynd um. Þarf að skoða þetta aðeins betur.
Vitið hvort að það sé einhverskonar spólvörn í honum
Ég er að spá í það að kaupa álfelgur undir hann og þetta er 17" og ég er að spá hvort að hann höndli þá stærð? Ég hef alltaf bara verið 15" maður.
Ætla mér að taka hann í gegn um helgina og skelli myndir af honum fljótlega eftir það.
Sæll Rúnki og velkominn á spjallið.
Kóngurinn er þegar mættur og hefur verið hér á spjallinu í þónokkurn tíma
Hljómar eins og vel útbúinn bíll, veit samt ekki með lætin og þennan hreyfanlega topp
Varðandi spólvörnina, þá sérðu það bara ef þú prufar að spóla/reyna að spóla. Ef þú nærð ekki að losa dekk og það blikkar á þig gult ljos í mælaborðinu þá ertu með spólvörn!