það skemtilega gerðist hjá mér á föstudaginn að ég var að skutla bróður mínum út á Bakka flugvöll þar sem hann var að fara til eyja.
Og ég var búinn að steingleyma að það væri malarvegur þennan stutta spöl út að flugvellinum,
og ekki var það venjulegur malavegur heldur einn sá versti sem ég hef séð.
Og það vildi þannig til að það stóð steinn beint uppúr veginum og fór hann beint í olíupönnuna og gerði risagat á hana.
þá þurfti ég að fá einhvern bifvélavrkja til þess að koma og draga mig inná Hellu og ætlaði hann að reyna að gera við þetta þar,
en það var ekki séns þannig að ég þurfti að fara í gær og sækja bílinn á bílaflutningakerru.
Þetta er það mest pirrandi sem ég hef lent í
Svo er maður að fara til spánar á morgun, þannig að þetta er frekar
slæmur tími




