Ég er búinn að vera að fylgjast með þessu spjalli í þónokkurn tíma enn hef nú lítið sem ekkert tjáð mig hér. Ákvað að kynna mig aðeins áður enn maður fer að babbla eitthvað meira hérna, enn allavega heiti ég Ari, er 17 ára gamall og ek reyndar ekki um á BMW heldur M.benz 320CE, enn maður er svo ungur ennþá þannig að maður á pottþétt eftir að fá sér einhvern BMW seinna. Hér eru síðan nokkrar myndir af bílnum, endilega tjáið álit ykkar á dollunni.





