Edit*
Ég var búinn að taka út topplúguna í aukabúnaðinum því mér sýndist alveg örugglega á myndunum að hún væri ekki til staðar en er búinn að bæta því inn aftur eftir að hafa fengið það staðfest frá Bjarka að bíllinn sé með lúgu. Hann reyndar bætti við að hann hefði aldrei flutt inn bíl án lúgu! væri bara algjört möst!!
En takk aftur fyrir góð comment!
"Moddin" sem ég sé fyrir mér að mig langar til að gera er að lækka hann örlítið að framan, setja reyklituð framljós og smá dekkingu í afturrúðurnar. Síðan er spurning með felgurnar. Einhverjir hafa sagt að þeim finnist þessar felgur ljótar en málið er að mér finnst þær sjálfur mjög flottar. Ætla að sjá til þegar ég sé bílinn "in person". Ég læt auðvitað þar við sitja ef mér finnst þær sjálfur fara bílnum vel. En samt kitlar mig verulega að reyna að fá einhvern daginn "Throwing Star" felgur á þennan bíl. Það eru draumafelgurnar mínar. Kannski einhverjum finnist það ósmekklegt þar sem það eru M5 felgur en málið er bara að mér finnst þær flottar
