Þetta er ekkert stórmál ég er svo kallaður bílaréttingarmaður og þetta hefur verið gert oft , það sem þarf að passa er að bíllinn skekkist ekki við þetta og þá getur verið gott að stífa hann á meðan að þetta er gert t.d með því að sjóða prófíla á milli póstana framm og aftur og í einhverja sterka staði.svo eru slöngur inní póstunum á topplúgu bílum sem að þarf að passa uppá þær eru til að hleypa vatni niður og eru þær yfirleitt fjórar,ég er núbúinn að taka svona topplúgu topp af e 30 það var allt lúgu dótið ónýtt brotið og slitið.svo ég ákvað aðeins í leiðini að leika mér með toppinn og var hann lækkaður 10 cm og soðinn þannig á, djöfull er hann flottur þannig.
Ég hef ekki tekið neinar myndir af þessu ennþá en það ætti nú að vera hægt svona fljótlega ef ég nenni. Bíllinn er núna í geymslu og ég í pásu frá honum svona verk hafa ekki neinn forgang það er svo margt annað að gera og þetta er bara til gamans gert
það getur vel verið að ég auglýsi hann bara til sölu einhvern daginn og þá verð ég auðvitað að koma með einhverjar myndir.
gaui1969@gmail.com e36 coupe 318is. Seldur e36 convertible 325i e21 1982 323i e30 top chop