Það er nú ekki allt í lagi með ykkur öll.
Að hafa þessar stóru myndir í undirskriftum og svo nú er einn með risamynd í avatar, eyðileggur (ónýtir) hálfan skjáinn hjá manni í öllum póstum sem hann kemur inná.
Þetta er flott fyrsta daginn, en eftir það nær óþolandi.
Ég mælist til þess að menn minnki þetta, alveg sérstaklega í avatar og dálítið í undirskriftum. T.d. að þurfa að skrolla reglulega yfir hundómerkilega mynd af hátölurum í einhverjum Skóda er óþolandi. Svo er ég viss um að þetta hægir talsvert á allri virkni spjallsins. Ekki má það nú við því.
Maður lítur annað slagið inná L2C og þar er búið að banna þetta.
Næstbestu kveðjur að norðan.

