Jæja ég var að þrífa bílinn í fyrradag og tók smá myndir til að sýna ykkur nýja framendann minn Reyndar er bíllinn orðinn haugaskítugur í dag sem er þessu suddaveðri hér að kenna. en hér eru myndirnar:
Ég fór með hann á bónstöðina hjá jobba í vélarþrif þegar ég var nýbúinn að fá hann. svo hef ég bara haldið þessu við með því að þurrka yfir með svínaskinni. Svo nota ég Simonize Back to Black spray á alla plast hlutina. bráðnar ekki eins og plastefnin á bónstöðvunum og glansar heví mikið
Ég held ég fari bara aftur út og þrífi bílinn í dag fyrst það er svona magnað veður!
Ég keypti mér mjallarbón áðan... er því miður með harðsperrur í hendinni þannig að ég ætla mér ekki að leggja í bónið í kvöld Hann er samt shiny og flottur síðan í gær.