Skipting?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Skipting?

Postby DiddiTa » Sun 26. Jun 2005 16:17

Sælir,

Núna í gærkvöldi hætti 1,2,3 og Dið að virka hjá mér en ég náði að dratta honum í stæði í bakkgírnum, Er skiptingin ekki bara nokkurnveginn farin ? Og á þá ekki eftir að kosta einhverja miljarða að taka hana upp og laga ? Borgar sig jafnvel að fá aðra notaða bara?

Edit:

núna var einhver að ljúga því að mér að þetta gæti verið Forward Clutch? í skiptingunni, Þetta lýsir sér bara þannig að það er bara hægt að bakka bílnum en hann grípur ekkert í áfram gírunum.

Ég var að spá hvort að þessi kúpling(ar?) væru eitthvað seldar sér og hvort það væri eitthvað vit í að skipta um það eitt og sér eða bara skipta um eða taka algjörlega upp ?

Ps. Bíllinn getur selst í núverandi ástandi nokkuð ódýrt :) Áhugasamir geta skotið tilboðum á mig.
Last edited by DiddiTa on Tue 05. Jul 2005 00:33, edited 2 times in total.
DiddiTa
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 429
Joined: Thu 30. Dec 2004 14:16

Postby Lindemann » Sun 26. Jun 2005 19:15

Keyptu bara bílinn minn, það er skipting í honum :wink:

ég skal taka þinn uppí á 15kall :lol:

en er örugglega nóg á skiptingunni hjá þér?
Last edited by Lindemann on Sun 26. Jun 2005 19:21, edited 1 time in total.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby oskard » Sun 26. Jun 2005 19:17

Það kostar varla marga miljarða að taka upp skiptingu en það getur
samt sem áður verið dýrt :)

Ef þú getur fundið notaða sjálfskiptingu gæti það verið mjög góð lausn !
oskard
 

Postby Svessi » Mon 27. Jun 2005 09:46

Tjékkaðu á olíunni á kassanum.

Ef þú hefur getað bakkað bílnum en ekki keyrt áfram. Spurning hvort olían hafi farið af kassanum á einhvern hátt.

Mæli samt ekki með því að þú hellir bara olíu á kassann og haldir svo áfram að keyra.

Láta svo athuga kassann.

*
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests