Ég held að þetta sé alveg rétt hjá Gunna, þessir náungar sem eru að standa í þessu vita alveg hvað þeir eru að gera. Þeir eru að sjálfsögðu með einhver viðskiptasambönd, þekkja bílasala ofan á auðvitað að (geri ég ráð fyrir) vera reiprennandi í tungumáli þess lands sem þeir versla við. Við aftur á móti vitum ekkert hvaða skrifstofur þarf að tala við, hvar við fáum tímabundin bílnúmer, hvaða plögg þarf að sækja og skrifa undir og svo framvegis.
Ég er reyndar alls ekki að segja að maður ætti ekki að sækja sér bíl út, ég er bara að taka undir það að það hlýtur að vera tímafrekt og kostnaðarsamt ef að allt er tekið inn í reikninginn!
Ég er sjálfur að hugsa um að gera þetta, en þá ætla ég líka að líta á það sem frí um leið og taka mér góðan tíma í þetta. Fara út og taka sér tíma í að finna bíl, kaupa hann síðan og dóla eitthvað úti eftir það. Keyra um á hraðbrautum,
fara á track á góðum sólardegi og svona!!
