Ég hef ekki verið mikill aðdáendi þessara bíla en um helgina sannaðist sú kenning að sumt bara virkar ekki á mynd og maður verður að sjá það in real life til að fatta hvað þetta snýst um.
Sá einn svona í London á laugardag. Það verður bara að segjast að þessi bíll er ALGJÖR GRÆJA. Ég féll bara í stafi, settist niður og horfði á hann í svona 10mínútur.
Fyrir aftan hann var Ferrari 360 Spider (rauður með ljósri blæju) algjör draumagræja, en SLR-inn skyggði alveg á hann.


