Bangle veikin

Hér skal spjalla um BMW.

Bangle veikin

Postby bjahja » Fri 27. May 2005 03:59

Ég er ekki frá því að Bangle kallinn sé að smita útfrá sér, það var ekkert lítið kúkað yfir hann þarna um árið og núna er ég farinn að sjá bangle í öðrum bílum.
Ég veit að hann er hættur hjá BMW og farinn einhvert annað og hvort hann hafi komið eithvað nálægt þessum hönnunum veit ég ekki.

Ég persónulega fíla það sem hann gerði fyrir bmw alveg mega vel og ég var bara að spá hvort að aðrir tækju eftir því sem er að gerast eða hvort ég sé orðinn heilaþveginn af bmw. Eru aðrir bílaframleiðendur undir áhrifum frá bangle?

Þetta er allavegana það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá nýja lexusinn og C4


BMW E60 5xx

Image


Citroen C4

Image



BMW 6xx

Image


Lexus GS430

Image


BMW Z9 concept


Image


Lexus GS430

Image
Last edited by bjahja on Fri 27. May 2005 12:51, edited 1 time in total.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby bebecar » Fri 27. May 2005 06:06

Nokkuð til í þessu hjá þér - það vantar samt dálítið upp á "flaming design" hugmyndina hans í þessum bílum, sú hugmynd kemur best fram í Z4...

EN heyrðu - er HANN FARINN frá BMW, það hefur farið alveg framhjá mér....
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby íbbi_ » Fri 27. May 2005 11:46

mér finnst bílarnir frá honum alveg "guðdómlegir" líkjast ekki neinu sem hafði áður runnið útúr verksmiðju, en samt alveg hreinræktaðir bmw í gegn, ég er alltaf finnst mér líka að ná að tengja hann betur við eldri bmw-a, finnst ég sérstaklega farin að sjá hákarlana í þeim aftur sem einkenna t.d E32 og e34
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby íbbi_ » Fri 27. May 2005 11:47

já og ég er ekki hissa að sjá eitthvað fckn ripp off hjá lexus, síðan hvenar hafa þeir haft fyrir því að hanna eigin lúkk ef þið skiljið mig.. sé aldrie neitt annað í bílunum frá þeim nema endurnýttar hugmyndir frá benz og bmw, ég HATA lexus
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby bjahja » Fri 27. May 2005 11:48

bebecar wrote:Nokkuð til í þessu hjá þér - það vantar samt dálítið upp á "flaming design" hugmyndina hans í þessum bílum, sú hugmynd kemur best fram í Z4...

EN heyrðu - er HANN FARINN frá BMW, það hefur farið alveg framhjá mér....


Nema ég sé orðinn geðveikari en ég hélt að ég væri, þá er hann hættur sem yfirhönnuður bmw :shock:
Last edited by bjahja on Fri 27. May 2005 12:09, edited 1 time in total.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Schulii » Fri 27. May 2005 11:55

Ég tek undir þetta sem Bjahja er að segja. Mér finnst ég vera farinn að sjá þennan svip með mörgum bílum. En spurningin er hvort sagan sé ekki bara að endurtaka sig?

T.d. E34 boddíið frá BMW. Það boddí hefur verið í hönnun á árunum ca. 1986 og 1987 því það kemur á markað 1988 :shock:

Ef þið munið hvað aðrir bílaframleiðendur voru að gera á þessum árum þá komist þið kannski á sömu skoðun og ég: að þetta hefur verið vægast sagt framúrstefnulegt útlit á bíl. Þetta boddí lítur ennþá út eins og bara það sem hefur verið að gerast fyrir stuttu í bílabransanum.

Síðan endurtekur þetta sig þegar E36 kemur.. og hinir framleiðendurnir eru nokkur ár að pikka upp þá strauma sem mér finnst að oftast komi frá þýskalandi varðandi útlit fólksbíla.

En auðvitað er ég hlutdrægur :lol:
..kannski er ég bara svona blindur á að BMW er bara að elta japönsku framleiðendurna eða að það er enginn að elta neinn :D
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby BMWaff » Fri 27. May 2005 12:23

Mér finnst lexusinn alveg einsog sexan að framan og svo einsog sjöa miðpartur og aftur úr :shock: plebbar
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby bebecar » Fri 27. May 2005 12:23

Nei, ég er bara alveg sammála þessu - þetta sást líka á E30, E31 (verulega modern GT bíll) og E38 t.d.... hinsvegar finnst mér alltaf E46 og E39 hafa verið afturför í útliti, þá helst E46 bílinn sem er bara alltof óræður einhvern veginn. Þó báðir geti verið geðveikir með M meðferðinni 8)
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby zazou » Fri 27. May 2005 12:28

íbbi_ wrote:já og ég er ekki hissa að sjá eitthvað fckn ripp off hjá lexus, síðan hvenar hafa þeir haft fyrir því að hanna eigin lúkk ef þið skiljið mig.. sé aldrie neitt annað í bílunum frá þeim nema endurnýttar hugmyndir frá benz og bmw, ég HATA lexus

Hér er eitt sem þú getur bætt við í vopnabúrið íbbi :wink:
Lexus er afturhjóladrifinn.... af því að markaðsdeildin taldi það söluvænna!
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Bjarkih » Fri 27. May 2005 14:11

Schulii wrote:T.d. E34 boddíið frá BMW. Það boddí hefur verið í hönnun á árunum ca. 1986 og 1987 því það kemur á markað 1988 :shock:


Það er meira að segja eldra en það, hugmyndin að boddýi kemur 7 árum áður en það fer í framleiðslu, ef mig mismynnir ekki.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Schulii » Fri 27. May 2005 15:32

Bjarkih wrote:
Schulii wrote:T.d. E34 boddíið frá BMW. Það boddí hefur verið í hönnun á árunum ca. 1986 og 1987 því það kemur á markað 1988 :shock:


Það er meira að segja eldra en það, hugmyndin að boddýi kemur 7 árum áður en það fer í framleiðslu, ef mig mismynnir ekki.


Það er líklega nær lagi. Þetta er rosalegt ferli að hanna bíl frá grunni.. tekur eflaust meira en 1-2 ár eins og ég var að skjóta á, en það gildir auðvitað það sama um aðra bílaframleiðendur lika..
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Bjarkih » Fri 27. May 2005 20:19

Ég spurði http://www.solvalou.com/misc_whatis.php? um Chris Bangle og ein af niðurstöðunum var þessi: "Chris bangle is getting the boot." Og já, ég veit að maður verður varla meiri vef nörd en þetta :-D
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests