Smá ferðasaga - 2500km

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Smá ferðasaga - 2500km

Postby jonthor » Fri 20. May 2005 13:36

Eurotrip 2005, Paris –> Marseille –> Barcelona –> Bordeaux –> Paris
Okkur hafði langað mjög lengi að keyra svolítið um Frakkland og jafnvel fara alla leiðina til Spánar. Það kom gott tækifæri þar-síðustu helgi þar sem að Guðrún var í viku fríi og ég gat tekið mér frí. Við lögðum því af stað með litlum fyrirvara í 2500 km ferð á BMW-inum. Það er gaman að segja frá því að við erum búin að keyra bílinn ~ 42.000 km síðan við sóttum hann til Frakklands í lok 2003.

Marseille
Tjah, í rauninni ekki Marseille heldur lítill bær 40 km í austur frá Marseille. Okkur var boðið í heimsókn til fransks vinar okkar, á vínbúgarðinn sem fjölskyldan hans á, rétt við Miðjarðarhafið. Við lögðum af stað til þeirra uppúr hádegi á laugardaginn og vorum komin um kvöldmatarleytið. Það er ótrúlega fallegt þarna, þetta er suður-Frakkland alveg eins og í myndunum með gömlu húsunum, flest byggð fyrir yfir 50-100 árum, og litlum vínbúgörðum bókstaflega út um allt. Landið hans er 5 hektarar.

Við gistum hjá þeim 2 nætur, borðuðum góðan mat og drukkum gott rauðvín. Hann gaf okkur að smakka úr kjallaranum hjá sér flösku frá 1991 sem var alveg mögnuð. Svo á mánudaginn kom annar franskur kunningi okkar við hjá honum í heimsókn. Hann kom með heimatilbúna osta sem fjölskyldan hans framleiðir. Við vorum því eins frönsk og hægt var þessa helgi. Við hjálpuðum meira að segja aðeins til við að róta upp í moldinni og losa vínviðinn við arfa á sunnudeginum.

Barcelona
Á mánudeginum keyrðum við svo til Barcelona og keyrðum einmitt í leiðinni í gegnum Marseille. Það var búið að vara okkur við að skilja hvergi bílinn eftir því þessi borg væri þekkt fyrir bílaþjófnað. Við stoppuðum því stutt og héldum áfram til Barcelona. Við vorum komin til Fanneyjar að ganga miðnætti. Íbúðin þeirra er mjög stór og við fengum heilt herbergi fyrir okkur.

Við vorum í 4 daga hjá vinkonu okkar og var tíminn vel nýttur til að labba um og skoða, fara á ströndina og borða góðan mat. Hún var í skólanum á daginn en á kvöldin var tíminn yfirleitt vel nýttur í spil, spjall og djamm. Við ætluðum í rauninni bara að vera 3 daga hjá henni en þetta var bara svo gaman að framlengdum um einn dag. Barcelona er falleg borg og það var virkilega gaman að hafa loksins skoðað hana betur.

Bordeaux
Á föstudeginum uppúr hádegi lögðum við svo af stað til Bordeaux. Eins og einhverjir vita þá er Bordeaux örfáa km frá Atlandshafinu svo við fórum í raun allt aðra leið tilbaka, nær vesturströnd Frakklands. Við vorum ekki búin að ákveða hvort við ætluðum að gista eða bara halda áfram til Parísar. Það er skemmst frá því að segja að féllum fyrir Bordeaux, veðrið var svo gott >30°C og miðbærinn svo fallegur að við ákváðum að gista þar eina nótt. Við skelltum okkur á lítinn veitingastað og hittum þar “local” fólk sem við spjölluðum við frameftir kvöldi. Þau voru einmitt frá Bordeaux og Cognac, ekki ónýtt það.

Það er ekki hægt að fara til þess héraðs sem framleiðir besta rauðvínið í Frakklandi án þess að kíkja í vínsmökkun, svo daginn eftir kíktum við í eina slíka og fengum að smakka. Þetta var professional og boðið upp á fötu til að spíta í, sem kom sér vel því við vorum að fara að keyra heim. Eftir það keyrðum við út að Atlandshafi á strönd sem heitir Arkachon. Þetta er mjög vinsæll staður hjá Frökkunum sjálfum til að fara í frí og það voru ótrúlega margir á ströndinni. Við settumst niður í sólina í 2 tíma og lögðum svo af stað tilbaka til Parísar og vorum komin heim um miðnætti.

---

Þessi ferð var í alla staði frábær. Við hittum skemmtilegt fólk og fengum að sjá meira af Frakklandi og eitthvað af Spáni. Það kom okkur líka á óvart hvað það var auðvelt að keyra þessa 2500 km. Við vorum yfirleitt að keyra 5-800 km í einu og það er furðu lítið mál, á meðan umferðin er ekki meiri en þetta. Við skemmtum okkur bara konunglega á leiðinni. BMW-inn stóð sig hörku vel, við fundum þó aðeins fyrir því að vera ekki með loftkælingu því á einum kafla fór hitinn í 33°C og það var glampandi sól. Þá var ekkert annað að gera en að skrúfa niður allar rúður og hækka í græjunum.

Við erum þegar farin að skipuleggja næstu ferð, þá verður stefnan líklega tekin á Ítalíu.

Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni:

-----

Eftir 850km ferðalag, komin á vínekruna:
Image

Vínekran sem við gistum á:
Image

Fjallabær rétt hjá:
Image
Image
Image

Rauðvín og ostar í hádegismat:
Image

Komin til Bordeaux:
Image
Image
Image

Vínsmökkun í vínkjallara í Bordeaux:
Image

Auðvitað verður alltaf að stoppa og skoða BMW-a til sölu :)
Image

Á ströndinni í Arkachon:
Image
Last edited by jonthor on Wed 25. May 2005 10:23, edited 1 time in total.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby gstuning » Fri 20. May 2005 14:09

Fullkomið

augljóst hversvegna það rúlar að búa á meginlandinu
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby bebecar » Fri 20. May 2005 16:55

Ég fer einmitt allavega einn svona rúnt í sumar - það er um að gera að nýta sér þetta meðan maður er hérna.

Þú ert þó óneitanlega betur staðsettur uppá hlýjari löndin að gera :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby jonthor » Tue 24. May 2005 08:35

Já þetta var bara með því skemmtilegra sem ég hef gert síðan ég kom hingað út. Líklega var eitt af því skemmtilegasta við ferðina hvað hún var lítið skipulögð. Vorum bara með hugmynd að því hvað við vildum gera nokkrun veginn og létum það svo bara ráðast.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby Geir-H » Tue 24. May 2005 11:52

jonthor wrote:Já þetta var bara með því skemmtilegra sem ég hef gert síðan ég kom hingað út. Líklega var eitt af því skemmtilegasta við ferðina hvað hún var lítið skipulögð. Vorum bara með hugmynd að því hvað við vildum gera nokkrun veginn og létum það svo bara ráðast.


Það er yfirleitt laaang skemmtilegast
Geir Harrysson
F11 535d x-drive
Seldir BMW
E39 525D
E38 740i
E39 540i
E34 M5
E34 540i
E34 530i
E36 320i coupe
Geir-H
Getawaybílstjóri
 
Posts: 664
Joined: Fri 22. Aug 2003 22:27

Postby Thrullerinn » Tue 24. May 2005 12:08

Þakka góða ferðasögu, kemur manni bara í gírinn enda að pakka niður og
leggja af stað eftir tvær klst 8)

Kv. Þröstur
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby jonthor » Tue 24. May 2005 12:18

Thrullerinn wrote:Þakka góða ferðasögu, kemur manni bara í gírinn enda að pakka niður og
leggja af stað eftir tvær klst 8)

Kv. Þröstur


Góða ferð, ef þú ferð í gegnum París þá býð ég upp á rauðvín og osta :D
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby Logi » Wed 25. May 2005 09:31

Þetta hefur verið alveg magnað, mann langar bara að far'að drífa sig út eftir að hafa lesið þetta...
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby bebecar » Wed 25. May 2005 10:12

Logi wrote:Þetta hefur verið alveg magnað, mann langar bara að far'að drífa sig út eftir að hafa lesið þetta...


þú fórst nú þokkalegt roadtrip í fyrra er það ekki?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby jonthor » Wed 25. May 2005 10:24

*edit* bætti við nokkrum myndum
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Wed 25. May 2005 10:52

Þetta er alveg BARA nice!
Ég öfunda þig :oops:
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby gstuning » Wed 25. May 2005 11:08

Gunni wrote:Þetta er alveg BARA nice!
Ég öfunda þig :oops:


Jebb lætur mann vilja flytja til útlanda enn meira :)
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby bebecar » Wed 25. May 2005 11:10

Nice myndir - og flott ferð. Alveg súper að taka svona vínrúnt 8)
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Kristjan » Wed 25. May 2005 22:15

Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Svezel » Wed 25. May 2005 22:22

ohh ég verð að fara að drullast til að klára skólann heima og drulla mér út :x

skemmtileg lesning og flottar myndir :)
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 45 guests