Kristjan wrote:
http://tinyurl.com/a58b6
Mjög huggulegur
Mjög nice þessi
Ég keypti Golfinn af tyrkja, en sá var bara fínasti gaur, með góða spennandi bíla til sölu og MEÐ þjónustubók MEÐ öllum stimplum - þannig að þeir eru ekki allir eins.
Hinsvegar, þá hef ég hringt í tvo tyrki og spurt um bíla og þá var einmitt bókin "týnd" - ég meina... halló!!! Hvernig væri þá að taka það úr auglýsingunni... skil ekki að þeim detti í hug að einhver slái þá bara til
Annars voru pólverjarnir verstir maður!!! Djísess... skoðaði touring fimmu hjá þeim - leit svona ljómandi vel út á myndum og lýsingarnar lofuðu fögru...
Þegar ég kem á staðinn (sem betur fer með nokkra vara bíla á listanum) þá er það lélegasti E34 sem ég hef á ævi minni séð - búið að sprauta hann með bláum metallic úr spreybrúsa, þeir hefðu alveg eins getað rúllað hann bara... tvö hnefastór RYÐGÖT í frambrettunum, það blés inn um allar hurðar í akstrinum (ég mátti til með að prófa hauginn fyrst ég var kominn á staðinn

) og það var ekki hægt að opna skotthlerann, hvorki glerið né hlerann sjálfan, reyndar ekki sóllúguna heldur...
Það virkuðu engir mælar nema hraðamælirinn...
Bíllinn átti að vera ekinn tæp 300 þúsund og með "nýupptekinni vél", ég hugsa að hann hafi verið nær 700-800 þúsund miðað við útlit og ástand OG svona til að hnýta lokahnútinn á þetta þá kostaði hann nákvæmlega sama og allir hinir Touring bílarnir sem eru oftast í fínu lagi - 4000 EVRUR!
Sorry þráðaránið - en það er erfiðara en maður heldur að finna góðan bíl, þrátt fyrir að það séu um milljón bílar til sölu á mobbanum....