Sæll bebecar:
En hvernig var það, var hann með loftkælingu
Nei hann er ekki með loftkælingu, tilgangslaust á íslandi

En það væri þó bónus
Það þýðir ekkert að setja svona standarda á E-30. Maður fær aldrei AKKURAT það sem maður vill. Þessi bíll sem ég er á núna er ekki með neina þjónustubók, eða stimpla, samt virkar bara vel og sýnist hann ætla að halda því áfram næsta árið/árin. Þetta eru orðnir það gamlir bílar að þeim fer fækkandi og gerir það að verkum að það sé ekki hægt að vera picky á þetta. Reyndu bara að finna þér einhvern bíl sem er í fínasta lagi, þó svo að hann sé ekki með alla stimpla.
Smári benti mér á þennan á autoscout síðunni. Búinn að vera í eigu miðaldra kalla sem lengst, svo tók yfir honum strákur, fæddur 75, sem vinnur á verkstæði, átti hann í 2-3 ár (man ekki alveg) og seldi mér hann svo.
Allavega er ég rosalega sáttur með eintak, af því sem komið er allavega.