Sko.....
Ég hef ekki prófað bílinn hjá Sæma, en menn sem ég treysti segja að það sé besta eintakið og ég held það líka miðað við lýsingar - engin spurning.
HINSVEGAR held ég að hinir tveir séu ekki það langt að baki (töldust báðir góð eintök áður en Sæmi skemmdi allt

, og mér finnst minn gamli MJ-877 (er einhver ástæða til að fela númer? - þau eru jú augljós öllum) lang flottastur af þeim útlitslega, en ég myndi heimta BBS felgurnar með honum, þó það þurfi að lappa aðeins uppá þær þá marg borgar sig að splæsa pening í það!
Þegar allt kemur til alls þá held ég að verðið skipti miklu máli, það er engin spurning að allir bílarnir eru í góðu lagi, en sumir kannski slitnari en aðrir. Svo skiptir auðvitað máli hvað fylgir með þeim og að hverju þú ert að leita.
Eitt er svo alveg ljóst, að ef manni langar í E34 M5, þá er NÚNA rétti tíminn til að kaupa!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road