Ég var rétt í þessu að stofna deild fyrir okkur í F1 Liðsstjóranum. Þeir sem vilja taka þátt með endilega skrá sig og koma í BMWKraftur deildina.
Innskráning í F1 Liðsstjóran er á www.formula1.is og svo til að skrá sig í BMWKraftur deildina þarf að nota eftirfarandi:
Innskráning: BMWKRAFTUR
Lykilorð deildar: BMW2WIN
Þetta var nokkuð skemmtilegur leikur í fyrra og gaman að taka þátt. Maður hafði auðvitað lítil fjárráð til að byrja með og þurfti að kaupa úr minni liðunum og kosturinn við það var að maður fór meira að fylgjast með fleiri liðum. Bara gaman.
Eini gallinn er að núna kostar þetta en það er samt engin stórupphæð, 850 krónur fyrir allt seasonið.



