Þetta er semsagt sogrein af m50b25 vél. Þessar sogreinar eru aðalega mikið notuð á M52 vélar (323,328) Ástæðan er sú að M50 hleypir mun meira lofti í gegnum sig og gefur alveg slatta af hestum. Eins og svezel sagði líklega ódýrstu hestöfl sem þú færð.
Ég er ekki með allt dótaríið sem Svezel var með í swappið en hérna er linkur á síðu sem er með lista yfir allt sem þú þarft og þessir hlutir eru nú ekki dýrir.
http://www.emotors.ca/Articles/article.aspx?id=40
Ástæðan fyrir því að ég á 2 stk er að ég pantaði þetta í desember og allt gekk vel. Svo beið ég og beið og sendi fjöldan allan af e-mailum til kauða en aldrei sá ég manifoldið. Ég gafst loksins upp og keypti mér annað og ætlaði að fá endurgreitt fyrir hitt. En í síðustu viku kom bara þetta blessaða manifold til mín
Ég ætla bara að selja þetta á 17.000 kr sem er það sama og ég borgaði



