Frekar öflugur E-36 M3 KOMPRESSOR

Sástu flottan BMW og vilt leyfa okkur hinum að njóta líka? Póstaðu því þá hér.

Postby saemi » Sat 29. Mar 2003 23:40

Ég verð nú að segja að mér finnst það nú bara BS að það séu ekki ungir strákar (og sumar stelpur) sem séu langhættulegustu einstaklingarnir í umferðinni.

Það er margsannað að það eru einstaklingarnir sem valda langflestum óhöppum.

Þó svo að maður keyri um í BMW eða hverju öðru tæki sem er hannað til að keyra á meiri hraða en annað, þá gerir það sko okkur alls ekkert öruggari en mann á Suzuki Alto. Ég keyri glannalega stundum og er ekkert stoltur af því. Ég ætla ekki að neita því að ég er meiri hætta í umferðinni en 40 ára kona sem er með börnin sín í bílnum á leiðinni í Hagkaup. Það er bara svo gaman að þessu og ég reyni að lágmarka glannaskapinn eins og hægt er og halda honum þar sem ég er ekki að stofna öðrum en mér í hættu.

Þó svo að það sé einhver gamall kall eða gömul kona að keyra á undan manni á 50 þar sem maður má keyra á 70, þá sé ég nú ekki að það eigi eitthvað að koma og klippa af þeim teinið. Bara að slappa af og sýna smá þolinmæði. Ég verð stundum ferlega pirraður þegar ég lendi fyrir aftan e-n sleða og blóta honum jafnvel. En svo get ég ekki annað en brosað þegar maður getur loksins tekið framúr og sér þá einhvern svaðalega krumpaðan og sætan í gömlu Lödunni sinni.

Ég meina, af hverju mega þeir eitthvað minna keyra en við. Við förum stundum 20 framyfir hámarkshraða, hvernig væri þá að fyrirgefa þeim fyrir að fara stundum 20 undir hámarkshraða :wink:

Bara að brosa og hugsa til þess þegar við verðum gamlir og hrörnaðir. Þá nenni ég ekki að fara alltaf í strætó alltaf :!:

Þegar við verðum gamlir þá vil ég geta keyrt bílinn minn og komist ferða minna.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby bebecar » Sun 30. Mar 2003 00:06

Mjög góður punktur Sæmi! Afhverju er maður að pirra sig frekar yfir þeim sem keyra 20 undir en 20 yfir! Nú er ég hættur að pirra mig... :lol:

En mikið vona ég að ég verði þokkalega sprækur bílstjóri þegar ég eldist.

Og svona í framhjáhlaupi má minnast á það að í nýrri könnun í UK þá kom í ljós að þeir sem voru mestu tjónvaldarnir voru á aldrinum 35-45! Kom mér verulega á óvart!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Svezel » Sun 30. Mar 2003 10:32

Ég held að það sé staðreynd að ungir strákar eru hættulegastir og fell örugglega inn í þennan flokk. Samt hef ég nú skánað aðeins og maður gerir ekkert orðið nema þegar enginn er á ferli (þó ekki alltaf :roll: ).

Samt fer fólk sem keyrir alltof hægt miðað við aðstæður rosalega í taugarnar á mér og oftar en ekki er það eldra fólk(60+). Þá býð ég oftast bara færis til að koma mér framúr eða blóta þeim bara og kveiki á útvarpinu.

Þó er einn hópur sem pirrar mig mest, en það eru miðaldra kallar á slyddujeppanum sínum(aðalega Grand Looser). Ég lenti í einum svona um daginn og var alveg kominn að því að stíga út úr bílnum og gefa honum einn á kjamman. Ég var á bílnum hennar mömmku með fullan bíl af dekkjum og þar að leiðandi var bíllinn ekki sá sprækasti á götunni. Í fyrsta lagi keyrði hann alveg í rassgatinu á mér allan tímann og svo þegar ég var stopp á gatnamótum og var að bíða eftr færi til að komast inn þá byrjar fíflið að flauta á mig. Það var ekki möguleiki að ég kæmist inn á götuna en helv#%$ fíflið í jakkafötunum flautar bara og grettir sig. Það hefði verið gaman að stíga út úr bílnum, banka á rúðuna hjá honum og spyrja hvort maður æti eitthvað hjálpað honum með flautuna.

Anyway þá er nokkuð ljóst að 17-20 eru hættulegir með glannaskapnum, gamla liðið með því að vera utanvið sig og keyra hægt og svo loks miðaldra slyddujeppafíflin sem halda að þeir eigi götuna.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby bjahja » Sun 30. Mar 2003 15:58

Það er líka þanning, ég þekki þetta úr vinnunni. Að fólk yfir 50 er miklu ókurteysara en ungt fólk.
Ég viðurkenni það líka að maður getur orðið vikilega pirraður.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Previous

Return to Áhugaverðir bimmar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 36 guests