Er að skoða BMW 525ix sjálfskiptann sem er ekinn 400.000km. Þekkið þið eitthvað til þessa bíls? Og hvernig er staðan á svona bíl eftir þetta mikinn akstur?
Er að leita mér að fimmu til að keyra milli Keflavíkur og Reykjavíkur daglega, verður að vera áreiðanlegur og æskilegt að hann eyði ekki eins og togari. Sem er næsta spurning, hvað haldið þið að 2.5 sítengdur fjórhjóladrifinn fimma sé að eyða sirka á hundraði í langkeyrslu? Það væri frábært ef einhver vissi það af eigin reynslu!
Þetta er græjan, lítur svona þokkalega út:http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&BILASALA=3&BILAR_ID=119656&FRAMLEIDANDI=BMW&GERD=525%20IX&ARGERD_FRA=1994&ARGERD_TIL=1996&VERD_FRA=195&VERD_TIL=795&EXCLUDE_BILAR_ID=119656
Kv, Andri
