Ég ætla að kaupa mér geisladiska magasín í bílinn en er að spá hvaða gerð ég á að velja og hvernig þetta funkerar með útvarpinu sem er í bílum (gott væri að fá smá upplýsingar um þetta). Útvarpið sem er í honum núna er standard frá BMW með kasettutæki og Navigation + TV.
Magasínið þarf ekki að vera einhver svaka græja, það þarf bara að geta spilað geisladiska og höndla smá hristing.
Einnig væri gott að fá hugmyndir um hvar best sé að staðsetja magasínið í bílnum ef þið vitið um einhverja sniðuga staði sem hægt er að mounta tækið.



