Jæja hann spyrnir af stað á fullu og fer svona 2 bíllengdir áfram áður en ég gef í (var ekki viss um að hann vildi spyrna þ.a. ég vildi bíða). Ég dreg vel á hann strax í 1.gír og ennþá meir í 2.gír en svo eiginlega ekki sögunnar meir og við erum svona nánast hlið við hlið út 3. gír þegar við slógum af.
Ansi sprækir þessir RC bílar (a.m.k. á ferðinni) og zetan stendur bara ágætlega fyrir sínu. Ökumaður RC var einn í bílnum og ég er ekki sá grennsti á svæðinu auk þess em vinur minn er eiginlega á við 2 (
En mórall sögunnar er: ég hef togið en vantar hestöfl
