Það er auðvitað rétt að það sé slatti til af þessu til sölu...
Hinsvegar finnst mér bílarnir síður en svo verri þó þeir séu notaðir og standi svo á safni þess á milli t.d. Mér finnst það algjör synd ef það er ekki verið að keyra safngripina.
Menn keyra nú ansi rösklega í Classic Car keppnum og stundum verða óhöpp þar sem bílarnir rústast, vissulega "svekkjandi", en menn gera þá bara upp og keyra svo aftur eftir uppgerðina....
Ekki gaman að strauja einn svona í frammúrakstri, en menn taka nú samt sénsinn á því - hvað söfn varðar þá finnst mér það nú bara skemmtilegra að bílnum fylgi saga, og finnst mér hann ekki neitt verri þó það sé smá steinkast á honum og smá slit á sætum o.s.frv....
En það þýðir ekki að ég vilji ekki heldur hafa bíla á söfnum til að skoða - mér finnst bara bæði best

Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road