Jæja strákar mínir,
Nú er kominn í gagn 325i túrbó,
Eftir smá æfingar með að finna út hvernig á að láta E36 320i ´96 loftflæðimælir virka í ´86 325i, en þar sem að við leysum alltaf allt þá komumst við að þessu á endanum, mjög einfalt og þægilegt, gæti verið sniðugt upgrade fyrir þá sem eru með gamla mælinn, þarf líklega ekkert að stilla tölvunna neitt að ráði, á öðrum bílum sem eru ekki með tölvu þá gæti annar FPR gert sama gagn,
Bíllinn gengur og snýst eins og stóðhestur á leið á Kentucky Derby og svo að fá sér drátt á eftir, mjög ákafur
Á eftir að setja ljósin og hitt og þetta í, fínisera víra og setja hann í púst, með ekkert downpipe heyrist ekkert miðað við non turbo með ekkert púst
Ég tók nokkrar myndir í flýti á nýju Canon vélina hans pabba, þær eru hér
http://simnet.is/gstuning/pics/turbo/meira/page_01.htm
Svo er bara að klára þegar ég kem úr vinnu ferð út á landi.
Þá verður gaman, svo að fá læsingunna hjá gunna og þá er bílinn til fyrir sumarið,
Einnig á ég eftir að sjá hversu mikið hann er að boosta og hvernig þetta á allt eftir að hanga saman,
Tókum WOT merkið úr til að ekki vera að flyta kveikjunni í botni, á eftir að borga sig seinna,
Ég mun skrifa langt langt Writeup af verkefninu,
ég ráðlegg mönnum að ekkert að vera að reyna svona nema að vera til í að spreða í þetta og hitt, þetta kostaði meir en ég gerði ráð fyrir, eins og projects gera alltaf,
Ég vona bara að boostið komi inn sem fyrst, það var ætlunin ekki massa power, þótt að það komi með hvorteð er,
bíllinn verður 250hö, 1140kg, 310nm með læsingu og coil over kerfi sem ætti að gera þetta að leikfangi ársins
Seeya