by saemi » Sun 23. Jan 2005 13:48
Kein problem, bevelkomst.
Þetta eru skotheldir mótorar að mínu mati. Þessir mótorar endast og endast án þess að þú gerir nokkuð við þá nema að skipta um olíu og ventlastilla kannski á 50-70K fresti. Algengt að það sé verið að taka heddið upp í svona 2-300K akstri og þá er ekki einu sinni komin brún í cylindrana!
Þetta eru bara öruggir mótorar. Sérstaklega í sjálfskiptum bílum þar sem ekki er hægt að fara með mótorinn á yfirsnúning. Ég hef séð þessa mótora klikka þar sem ventlar brotna og skemma út frá sér. Eina rökrétta skýringin á því finnst mér vera of mikill snúningur.
Sæmi
E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,