BMW...303...

Sástu flottan BMW og vilt leyfa okkur hinum að njóta líka? Póstaðu því þá hér.

BMW...303...

Postby Chrome » Wed 19. Jan 2005 08:23

303 er sá bíll er fyrst bar nýrun sem við þekkjum svo vel í dag og gerir það hann því að fyrsta eiginlega BMW-inum í hugum margra. bíll þessi er búin fyrstu 6-cyl mótornum frá bmw og var það hugmynd vélfræðingsins Rudolf Schleicher að hanna þá vél uppúr gömlu 4-cyl vélinni úr 3/20. Reyndar hafði Max Friz yfir vélahönnuður og meðeigandi hannað mjög háþróaða 4-cyl vél úr áli til að koma til móts við orku þorsta Franz-Josef Popp sem var þá var framkvæmdarstjóri (en hann og Max Friz auk fjárhagslegum bakhjarli að nafni Camillo Castiglioni höfðu tekið yfir fyrirtækið af Karl Friedrich Rapp árið 1917), ákveðið var að notast við 6-cyl mótorin þar sem það var einfaldlega ódýrara að bæta 2-cyl við gömlu vélina. Vélin var svo hönnuð af Fritz Fiedler og var hún þannig gerð að auðvelt yrði að stækka við cylinderana. Max Friz gekk útur fyrirtækinu eftir þessa ákvörðun.
Skelin er svo hönnuð af Peter Schimanowski, sem er talin eiga heiðurin á nýrunum ;) Bíllin var búin nýrri útfærslu af framfjöðrun sem þótti býsna góð, en hanns helsti veikleiki var alltof stíf aftur-fjöðrunin...

[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/303.jpg[/img]
[url=http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/14138_1024.jpg][img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/BMW4.h6.jpg[/img][/url]
...hægt er að fá stærri mynd með því að smella á neðri myndina...

Tækni upplýsingar:
Slagrými: 1175cc
Hestöfl: 30@3500rpm
Tog: N/A
Hámarkshraði: 100km/h
Framleiðsluár: 1933-1934
alls voru framleidd 2300 eintök
...Mazda 323F 98'...

S.S.S
"We are all born ignorant, but one must work hard to remain stupid." -Benjamin Franklin
User avatar
Chrome
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1739
Joined: Tue 17. Feb 2004 15:36
Location: Kópavogur

Return to Áhugaverðir bimmar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests