316i wrote:
1 M8 framleiddur!! 550bhp V12 6.0l

Já - einn M8 - lagði grunninn að McLaren vélinni....
Já - 830 - sá þetta á vefsíðu um E31 bílana - mjög góð síða en man því miður ekki urlið. Var að reyna að sannfæra góðan vin minn um að 850CSi væri meira töff en E36 M3 Coupé og á svipuð verði þar að auki.... sem hann viðurkenndi auðvitað en eins og hjá okkur flestum snýst þetta um að hafa stjórn á brjálæðinu og því er M3 E36 bara mjög skynsamlegur.
Ég reyndi svo að finna 830 til sölu og það er bara ekki einn einasti til sölu - sem er kannski ekki skrítið miðað við 18 stykki....
En svona í framhjáhlaupi - þá var gaman að lesa um M8 (850CSi) sem að mínu mati er nú barasta einn flottasti M bíllinn fyrir kannski utan M1 og þetta er eiginlega ekta M bíll, meira ekta en sumir aðrir allavega... Smíðaður af mótorsport deildinni, með SWB númer, rauðar nálar og skráður sem M8 í Fahrzeugsbrief....
Þetta kostar síður en svo mikið miðað við hve bíllinn er frábrugðinn "venjulegum" 850 bíl og auðvitað 381 hestöfl
