Spyrnufóðringar ????

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Spyrnufóðringar ????

Postby Adidas » Thu 27. Dec 2012 17:26

Sælir.

Hefur eitthver e39 m5 eigandi lent í því að innri spyrnufóðringarnar í stóru spyrnunum að aftan fari hjá þeim?

Það er ein farin sitthvorumegin hjá mér og ég finn engann sem selur fóðringuna sér... Í umboðinu, Eðalbílum og Tækniþjónustu Bifreiða geta þeir bara selt mér komplet spyrnur með fóðringunum og þá er verið að tala um tæpann 300þús kall!!!

Veit eitthver um síðu á netinu þar sem ég get keypt fóðringarnar sér????
Adidas
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 82
Joined: Sun 04. Nov 2012 09:21

Re: Spyrnufóðringar ????

Postby Navigator » Sat 29. Dec 2012 14:15

þessi verðmiði er keppnis !

ég leitaði á netinu og það virðist ekki hægt að fá fóðringarnar stakar, spurning hvort þær séu vökvafylltar en fyrir þennan verðmiða myndi ég leita lengi.

ræddi við frænda minn sem er rennismiður og vinnur við ýmsa smíði (báta) en hann hefur verið að steypa silikon í þéttingar og titringsdeyfa, segir að það sé hægt að fá ýmsan stífleika, silikonið eigi að þola efni og frost svo það er hægt að reyna amk fyrir þennan verðmiða.

en á ýmsum BMW-spjallborðum eru menn að skipta út vökvafylltum fóðringum í "sub-frame" sem virðast ekki vera að endast nein ósköp (um 100þkm úti svo það væri líklega minna hér á okkar frábæru götum) og bílarnir allt aðrir og betri eftir þau skipti, þú ert ekkert að meina þær ?

ég sá fyrir mér að mæla fóðringuna, finna massívan gúmmíhlut (bobbing), bora eða skera út gúmmísívaling sem hægt er að sníða til og pressa svo saman gömlu slíf og fóðringu við gúmmíið, worth a try for the money ?

ætli að smíða þetta úr poly sé ekki eyðilegging á akstureiginleikum nema menn vilji "race" ?
Jón Ingi
s. 692 1212
Navigator
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 52
Joined: Thu 28. Jul 2011 13:34

Re: Spyrnufóðringar ????

Postby slapi » Sat 29. Dec 2012 17:52

Eitthvað finnst mér eins og það sé hægt að nota úr x5
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: Spyrnufóðringar ????

Postby Adidas » Sun 30. Dec 2012 14:00

Þær eru mjög svipaðar allavega í x5. En ekki alveg eins, alllavega er ballansstanga enda festingin ekki á sama stað...

En ég er búinn að pressa fóðringuna úr og þessi fóðring er með kúlulið inní....

Það hlítur þá að vera nauðsýnlegt að finna þannig fóðringu aftur... En það verður eitthvað erfiðara heldur en hefði verið að finna massíva gúmmí fóðringu!!!
Adidas
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 82
Joined: Sun 04. Nov 2012 09:21

Re: Spyrnufóðringar ????

Postby Navigator » Mon 31. Dec 2012 11:16

kúlulið inní, athyglisvert, ég væri til í að sjá mynd af þessu ef þú kemur því við takk.

en held að X5 notist við sömu fóðringar, það hafi verið fullyrt í einhverjum þræðinum sem ég las en það er nú varla til mikið af þeim á lausu !

s.s. kúluliður orðinn rúmur eða gúmmífóðringin ónýt ?

spurning að tala við Vélvík uppá höfða þegar opnar eftir áramót, þar eru menn að smíða ýmislegt og gætu átt lausn eða vísbendingu.


endilega komdu með mynd(ir) af þessu, ég skal ræða við félaga minn sem vinnur við bátasmíði og annan sem er véltæknifræðingur, það er einhver lausn á þessu nema BMW hafi viljandi gert þetta algerlega einnota ;)
Jón Ingi
s. 692 1212
Navigator
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 52
Joined: Thu 28. Jul 2011 13:34

Re: Spyrnufóðringar ????

Postby slapi » Mon 31. Dec 2012 16:01

Geturðu reddað mynd af þessari fóðringu?
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: Spyrnufóðringar ????

Postby Adidas » Fri 04. Jan 2013 18:48

Já skal setja mynd af þessari fóðringu inn í kvöld...

Það er ekkert gúmmí í þessari fóðringu samt...bara ál klumpur sem er með hólk með kúlu í miðjunni í gegnum sig... Sennilega er líka feiti eða jafnvel bara plastfoðring utanum kúluna og svo eru bara svona gúmmí utanum hólkin svo drulla fari ekki þarna inn.

Og ég held pottþétt að það séu sömu fóðringar í x5, eini munurinn sem ég sá á spyrnunni var að ballansstangar festingin er ekki alveg á sama stað.
Adidas
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 82
Joined: Sun 04. Nov 2012 09:21


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests