Sælir
Keypti mér þennan gullfallega 540i 2002 módel fyrir nokkru og ég gæti ekki verið meira ánægður með hann, en honum líkar ekki við mig og er alltaf að öskra á mig eða semsagt talvan gefur alltaf frá sér óþoldandi hljóð í laangan tíma þegar ég sit í bak og stundum þegar ég er nýlagður á stað.
Ég býst við því að þetta tengist eithvað bakkskynrum en það er oftast ekkert nálægt bílnum ég næ síðan að þagga niður í honum með því að ýta á PDC takka á tölvuni en ég þarf að gera það í hvert einasta skifti sem ég fer eithvað á bílnum.
Er eithvað bilað hjá mér og hvernig get ég þaggað niðri þessu? Síðan er annað sem mig langaði að spyrja ykkur meistarna að en það er sambandi við Max takkan á miðstöðinni, virkaði fínt þegar ég fékk bílinn og mér leið eins og ég væri að kveikja á þotuhreyflum þegar ég ýtti á hann en núna virkar hann ekki. Er einhver séns á því að ég hafi einhvern meigin læst eða gert hann óvirkan? fynnst svo ólíklegt að hann hafi bilað svona stuttu eftir að ég keypti bílinn.
