Jæja núna vantar mig smá aðstoð frá ykkur snillingunnum.
Þannig er mál með vexti að þegar ég set bílinn í R as in bakkgír þá kyppist hann stundum til. Þegar ég lét skipta um sjálfskiptiolíu á honum var mér bent á að þetta væri einhver "aftasti hjöruliður" á drifskaptinu sem væri slitin.
Svo spurningin mín er sú hvort að einhver hafi lent í þessu og gæti sagt mér nákvæmlega hvað sé að þar sem að þetta er orðið frekar leiðinlegt og það eina sem er að bílnum.
Og já bíllinn er sjálfskiptur.

