Málið er að ég skipti um viftureimina fyrir stuttu vegna þess að það var farið að væla í henni (þetta týpíska viftureima væl).
Eftir að ég skipti svo um reimina hélt áfram að koma óhljóð frá henni
.Þegar ég fór að skoða málið betur sá ég að viftureimin var ekki alveg rétt á strekkjarahjólinu, þ.e. gengur frammaf hjólinu í átt að vélinni c.a. 3-4mm.
Ég færði reimina á sinn stað það en tók eftir að um leið ég setti í gang gekk reimin aftur aðeins frammaf strekkjarahjólinu.
Þekkið þið svipað dæmi um svona mál?
Mér finnst strekkjarinn strekkja vel og heyri ekki óhljóð í legunum frá honum eða pulley hjólinu...
Spurning hvort ég þurfi nýjan strekkjara eða er kannski hægt að stilla þetta e-h til
Hér er mynd sem ég fékk lánaða af veraldarvefnum af eins reim...
http://i44.photobucket.com/albums/f23/v ... sioner.jpg



