Ég er að pirra mig mikið yfir framljósunum á bílnum hjá mér. Þannig er að ljóskerinn duga bara ekki neitt .. varla búnað setja eitt í þegar hitt deyr Og ég veit margt skemmtilegra en að skipta um þetta Er ég að kaupa léleg ljósker eða hvað Hef bara keypt svona ljósker í local búð hérna á Akranesi , ætti ég að fara kaupa þetta annarstaðar og hvar þá.....
Ertu að kaupa heilt ljós alveg, hvað kostar það eiginlega,
ég myndi reyna að finna ljós á partasölu ef það er svoleiðis hjá ykkur fyrir norðan
Ef það er glerið sem er alltaf að springa og er original Hella eða Bosch þá þarftu að setja glæra filmu yfir ljósið, eins þykka og þú getur, notar hita blásara til að mýkja plastið svo að það komist slétt yfir glerið og coveri alveg,
þá færðu bara smá dent í filmuna í staðinn
With great challenges comes great engineering. Gunnar Reynisson
saemi wrote:Er þetta nokkuð ameríkutýpa með ljósasamloku?
Ef þetta er svoleiðis, þ.e. samloka, skiptu þá strax yfir í "european" ljós, þ.e. H1 (held það sé á E30) það er miklu ódýrara að skipta um H1 peru helur en samloku, örugglega til hjá Bílastart Garðabæ.
Þakka svörin !
Jú þetta er ameríkutýpa með svona ljósasamloku. Hljómar mun betur að skipta um peru en samloku. Er þetta mikið mál að breyta yfir í european ljós , og kannski dýrt þá ?