Fór með bílinn í aflestur í T.b í gær og þar komu fram villur í loftflæðimæli. Ástæðan fyrir lestrinum var síversnandi gangur í bílnum.
Lýsir sér þannig að hann gengur gróft og versnar eftir því sem að hann hitnar, kraftleysi og hann koðnar niður við inngjöf. Sérstaklega slæmur virðist hann vera eftir hressilegar inngjafir. Þá rétt lafir hann í gangi en virðist svo hressast smám saman eftir rólegan akstur.
Ég vil nú ekki fara að hugsa um Vöku alveg strax en ég er orðinn virkilega pirraður á þessu.
Einhver sem gæti varpað einhverju ljósi á þetta?
Já er er by the way kominn með nýjan loftflæðimæli og bíllinn nákvæmlega eins á eftir.
Kv.
Egill





