Diska magasín - NO DISCS

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Diska magasín - NO DISCS

Postby grettir » Wed 28. Jan 2009 13:45

Ég lenti í því um daginn að magasínið mitt sýndi bara "NO DISCS" einn daginn. Þegar ég tók boxið úr og setti það í aftur var eins og það tæki ekki við sér, fletti ekki diskunum og ekki neitt.

Eftir smá grúsk á netinu fann ég þráð um málið og var bent á að undir magasíninu væri plögg sem maður ætti að taka úr sambandi í 30 sekúndur og plögga svo í samband sem ég prófaði.

Magasínið hrökk í lag við þetta. Líklegasta skýringin er sú að það hefur fengið högg við holu eða eitthvað, diskur ekki settur rétt í og það ekki ratað "heim" aftur, en við reboot er allt í lagi.

En þetta trix er þá komið hingað inn ef þetta hjálpar einhverjum seinna.

Leitarorð: e39 magasín no-discs
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 44 guests