einarsss wrote:
Hvernig?
deila þekkingunni eða kjána mistökunum með okkur

Ég hef s.s maargoft reynt að læsa skottinu án árangurs þangað til í dag þegar að ég reif samlæsingar mótorinn út til þess að athuga hvort að hann væri fastur og þar af leiðandi valdur þess að ekki væri hægt að hreyfa við læsingunni. En þegar að ég setti mótorinn aftur í hef ég annaðhvort togað eða ýtt pinnanum í læsingunni inn og þar af leiðandi læst skottinu og svo lokaði ég því.
En þegar ég ætlaði svo að skipta um perur í afturljósunum þá komst ég að því að skottið var læst

Þannig að ég fór inná realoem.com en fann ekkert þar sem gat hjálpað mér og því bjó ég til þennan þráð. En ég var á hraðferð með bílinn í bæinn til kelirínu og gat ómögulega keyrt bílinn í bæinn með hvorki stefnu- né stöðuljós að aftan og því VARÐ ég að opna skottið. Ég náði því í gúmmí hamar, setti lykilinn í skrána og barði svo temmilega á enda lykilsins og voila ég gat snúið lyklinum hálfhring, því næst drekkti ég skráni í WD-40 og eftir það gat ég læst og opnað af vild
Til gamans má geta að það var 5W pera í vinstra stöðuljósinu en 21W pera í hægra stöðuljósinu að aftan sem að olli því að ljósin lýstu misvel, en það á vera 10W pera og það stendur meira að segja við perustæðin
