E39 fastur í inngjöf

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E39 fastur í inngjöf

Postby Throstur » Mon 05. May 2008 01:00

Kvöldið,

Lenti skemmtilegheitum í kvöld með E39 540 bílinn minn, var að taka framúr á Reykjanesbrautinni og þá festist bílinn í botngjöf.

Drap á bílnum og setti út í kant, prófaði að setja hann aftur í gang og hann fer í botngjöf um leið og hann fer í gang. Opnaði húddið, hamaðist á bensíngjöfinni í vélinni fram og til baka en hún var ekki föst inni eða neitt slíkt. Þetta var það eina sem mér datt í hug að gera, endaði á að láta draga bílinn heim í borg óttans þar sem ég vildi ekki skilja hann eftir úti í kanti á Reykjanesbraut.

Er eitthvað sem ég (sem er algjör auli þegar kemur að viðgerðum) get gert annað en að láta draga hann til B&L/TB og láta þá kíkja á málið?

N.b. þá var vesen með inngjöf í starti á bílnum sl. sumar, það endaði með endurforritun á tölvunni frá grunni hjá B&L sem leysti málið. Grunar þess vegna að þetta gæti verið tölvumál, og þá er víst lítið sem maður getur gert. En er eitthvað annað sem imbi eins og ég get gert sjálfur?

Öll svör eru vel þegin :)
E39 540iA 07/96 - Arktissilber
User avatar
Throstur
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 36
Joined: Wed 24. Sep 2003 19:47
Location: Reykjavík

Postby oddur11 » Mon 05. May 2008 01:07

er ekki bara virinn i barkanum fastur eða eithva (annars veit eg ekkert)
Mazda 626 '98 R.I.P
BMW e32 730i '93 seldur
BMW e46 318 '99 seldur
BMW e30 335 '89 "Got drift?" seldur
Benz e190 '92 sportliner seldur
BMW e34 525tds seldur
BMW e39 523ia mattsvartur daily seldur
BMW e36 325is
BMW e36 318is seldur
BMW e34 525
User avatar
oddur11
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1351
Joined: Mon 25. Feb 2008 16:45
Location: 109 Breidholt

Postby Throstur » Mon 05. May 2008 01:16

oddur11 wrote:er ekki bara virinn i barkanum fastur eða eithva (annars veit eg ekkert)


Það er svosem möguleiki, ég sá samt ekki betur en að vírinn væri að virka rétt. Annars þekki ég EKKERT inn á þetta, ég kíki betur á þetta í fyrramálið þegar það er betri birta úti.
E39 540iA 07/96 - Arktissilber
User avatar
Throstur
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 36
Joined: Wed 24. Sep 2003 19:47
Location: Reykjavík

Postby Einsii » Mon 05. May 2008 08:33

Varstu að nota krúsið ?

M60 bílar voru innkallaðir útaf galla í því einhvertíman.. Ef það er málið verður þú að draga barkann frá krúsinu til baka með höndunum. Í E34 er "mótorinn" sem togar í barkann á bakvið vinstra framljósið (frá ökumanni séð), veit ekki með E39
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Mr_Gold » Mon 05. May 2008 12:28

Ég lenti nokkru sinnum i þessu hja mer á e-36inum. En þa var benínpetalainn alltaf að hoppa úr stað og fara ofaná mottuna.. eg veit ekki hvort það er þannig hja þér en þú getur tékkað á því.
BMW 323i E-36 Seldur.
Mr_Gold
Kassabílstjóri
 
Posts: 100
Joined: Fri 22. Jun 2007 11:49
Location: Reykjavík..

Postby Bjarki » Mon 05. May 2008 15:27

er bensínbarki í svona bíl?.....spyr sá sem ekki veit!

Amk mjög auðvelt að komast að því með því að kíkja ofaní húddið.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Re: E39 fastur í inngjöf

Postby Axel Jóhann » Mon 05. May 2008 15:30

Throstur wrote:N.b. þá var vesen með inngjöf í starti á bílnum sl. sumar, það endaði með endurforritun á tölvunni frá grunni hjá B&L sem leysti málið. Grunar þess vegna að þetta gæti verið tölvumál, og þá er víst lítið sem maður getur gert. En er eitthvað annað sem imbi eins og ég get gert sjálfur?





Getur ekki bara líka verið að miðað við að þetta hafi gerst hjá þér áður að það sé tölvustýrð inngjöf.



Annars myndi ég fara sem fyrst bara með bílinn uppí BogL ef að þú finnur engann inngjafar barka. :)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby Throstur » Mon 05. May 2008 15:31

Var ekki að nota krúsið. Ekkert fast undir petalanum, hann hegðar sér eðlilega.

Bensínbarki segirðu. Hef ekki hugmynd að hverju ég væri að leita að :-) Hvar myndi ég finna hann ef hann er til staðar og hvernig lítur hann út? Kannski til mynd einhversstaðar sem ég get skoðað?
E39 540iA 07/96 - Arktissilber
User avatar
Throstur
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 36
Joined: Wed 24. Sep 2003 19:47
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Mon 05. May 2008 15:41

Throstur wrote:Var ekki að nota krúsið. Ekkert fast undir petalanum, hann hegðar sér eðlilega.

Bensínbarki segirðu. Hef ekki hugmynd að hverju ég væri að leita að :-) Hvar myndi ég finna hann ef hann er til staðar og hvernig lítur hann út? Kannski til mynd einhversstaðar sem ég get skoðað?


held þeir eigi við vír úr bensíngjöfinni sem togast í þegar þú ýtir á gjöfina ... þetta er líkt handbremsubarka+vír á fjallahjóli svo þú áttir þig á þessu
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby íbbi_ » Mon 05. May 2008 18:17

mig minnir að E39 hafi verið komnir með eletrónískt-sinnaðan-inngjafarfetil, gætu verið ingri bílarnir bara þó
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Hannsi » Mon 05. May 2008 18:21

ef þetta er bíll sem er 99 eða yngra er ekki barki þar sem það er rafmagns throttlebody. En þar sem mig dettur í hug er að ef ekkert er að nemanum í pedalanum að þetta sé Vacoom leki.
Það er rör undir innspýtingunni sem er með lítilli hosu sem á til að rifna í sundur.
Ef ekki plögga við tölvu því að pedalinn er að gefa throttlebody-innu vitlaus boð
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests