kraftleysi / gangtruflanir í m60

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

kraftleysi / gangtruflanir í m60

Postby Ásinn » Mon 11. Feb 2008 15:42

Var að keyra um daginn og skyndilega komu upp einhverjar mjög skrítnar gagntruflanir, þetta er E34 540 btw.

Þetta lýsir sér þannig að hann missir allan kraft og rétt prumpast áfram, í brekku þá gefst hann nær allveg upp og ég gat rétt komið honum heim, samt drap hann ekki á sér. Erfitt að lýsa þessu en það er hálfpartinn eins og hann nái ekki að anda þ.e. kemst ekki á snúning og þegar maður ýtir á bensínið þá bara kokar hann. Það hefur verið skipt um o2 skynjara, sveifarásskynjara og knastásskynjara og kertin eru ný.

Ég hef ekki prófað að keyra hann eftir að þetta gerðist en ég held að vandamálið sé ekki viðvarandi því hann hefur látið svona áður og hann hefur verið í lagi í millitíðinni. Ég var líka búinn að keyra í dágóðan tíma þegar þetta kom upp og bíllinn því vel heitur.

Eitt sem ég tók eftir er að pústið var sjóðandi heitt þegar ég hafði komið honum heim, getur verið það sé einhver stífla í hvarakútnum sem veldur þessu? Annars væri fínt að fá innlegg frá ykkur sérfræðingunum um hvað gæti valdið þessu.
Ási
E34 BMW 540 '93 SELDUR
E36 BMW 318 '91 SELDUR
Yamaha FZ6 600 Naked
Ásinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 42
Joined: Mon 27. Nov 2006 11:55
Location: Hafnarfjörður

Postby Angelic0- » Mon 11. Feb 2008 15:50

Stífla í hvarfakútum..... kæmi svosum til greina :!:

En ertu búinn að athuga með MAF :?:

of lítið bensín of mikið loft getur líka valdið heitu afgasi :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Ásinn » Mon 11. Feb 2008 17:08

MAF er það ekki mass air flow sensor? ég hef skoðað hann og hann lítur ekki út fyrir að vera farinn þ.e. platan inn í honum er heil. Tými bara ekki að kaupa nýjan nema vera viss um að hann sé farinn því þeir kosta big bucks!
Ási
E34 BMW 540 '93 SELDUR
E36 BMW 318 '91 SELDUR
Yamaha FZ6 600 Naked
Ásinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 42
Joined: Mon 27. Nov 2006 11:55
Location: Hafnarfjörður

Postby Angelic0- » Mon 11. Feb 2008 18:55

Ásinn wrote:MAF er það ekki mass air flow sensor? ég hef skoðað hann og hann lítur ekki út fyrir að vera farinn þ.e. platan inn í honum er heil. Tými bara ekki að kaupa nýjan nema vera viss um að hann sé farinn því þeir kosta big bucks!


Það er ekki platan sem að fer..... heldur nálin verður skítug & so on...
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Gunnar Hnefill » Mon 11. Feb 2008 19:23

Ertu búnað athuga með bensín síu og bensíndælu eða hvort það sé stífla í önduninni í bensíntanknum ?
Hilux 36"
BMW e36 325I
Land Cruiser VX
BMW e34 530IA
Gunnar Hnefill
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 402
Joined: Mon 06. Nov 2006 23:53
Location: Húsavík

Postby saemi » Mon 11. Feb 2008 19:33

leitaðu a ebay.co.uk t.d. fann svoleidis thar um daginn tegar eg keypti svoleidis. Kostadi minnir mig 14thus hingad kominn. Nyr btw.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Ásinn » Mon 11. Feb 2008 22:25

Ætla einmitt að skipta um bensínsíurnar. Ef bensíndælan væri farin myndi dýrið þá ekki drepa á sér? Spurning með einhverja stíflu í einhverjum bensínleiðslum, hvað væri besta leiðin til að athuga það, þyrfti ég að rífa tankinn undan?

Sæmi ertu þá að tala um mass air flow sensorinn? Er ekkert hægt að mæla signalið frá honum, þ.e. staðfesta að hann sé að klikka? Virkar ekkert að hreinsa þá?
Ási
E34 BMW 540 '93 SELDUR
E36 BMW 318 '91 SELDUR
Yamaha FZ6 600 Naked
Ásinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 42
Joined: Mon 27. Nov 2006 11:55
Location: Hafnarfjörður

Postby saemi » Mon 11. Feb 2008 22:43

Eg hef ekki góða raun af þvi að reyna að mæla þetta. Ef þetta er bill sem þu ætlar að eiga eitthvað, þa myndi eg kaupa nyjan maf.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Tommi Camaro » Tue 12. Feb 2008 19:09

hvaða kerti varstu að nota.
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby EB » Tue 12. Feb 2008 20:49

Sælir. Ég er nýr á þessu spjalli og er með 740 ár 94 (e32m60). Ég á við nákvæmlega sama vandamál að stríða og Ásinn ( nákvæmlega sama lýsing ) nema það kviknaði í aftasta hljóðkútnum þegar ég var að koma bílnum heim eftir að hafa verið að skoða hvað væri að og skipta um ventlaloks pakkningu sem var orðin lek (smit). Sem betur fer skemmdist bíllin lítið en þetta hefði getað farið illa þar sem bensín tankurinn er við hliðina á aftasta kútnum. Ég fór með bílinn á kerru til Tækniþjónustunnar og þeir sögðu að háspennu keflin væru ónýt. Ég fékk tvö kefli hjá Sæma ( takk ) og víxlað keflum fram og aftur og ekkert skánaði, bruninn í aftasta hljóðkútnum stafar líklega af óbrunnu bensíni sem kviknar í vegna súrefnis sem það fær aftast í pústkerfinu. Þannig að núna er ég að bíða eftir betra veðri til að fara með bílinn aftur í tékk þar sem þeir eiga að sjá hvort loftflæði sensorinn er að virka. En varaðu þig á hitanum á pústinu það munaði mjjjööög litlu að illa færi hjá mér.
EB
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 3
Joined: Tue 12. Feb 2008 20:17
Location: Mosfellsbær

Postby Ásinn » Wed 13. Feb 2008 08:23

Veit ekki nákvæmlega hvernig kerti þetta voru, keypti þau í TB. Gætu þau verið að klikka?

EB, kæri þjáningabróðir, þú telur það semsagt líklegast að þetta sé loftflæðiskynjarinn eins og menn eru að leggja til hér? En hvernig er það, þarftu ekki að láta taka hvarfann í burtu eða skipta um hann, skemmist hann ekki af óbrunnu bensíni? Tala nú ekki um þegar bíll er kominn í 200+ eins og minn. Þú verður svo að láta mig vita ef þú finnur eitthvað frekar út úr þessu og öfugt.
Ási
E34 BMW 540 '93 SELDUR
E36 BMW 318 '91 SELDUR
Yamaha FZ6 600 Naked
Ásinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 42
Joined: Mon 27. Nov 2006 11:55
Location: Hafnarfjörður

Postby Lindemann » Wed 13. Feb 2008 16:37

bíll sem er keyrðu 200þús km er alveg 95% með ónýta hvarfakúta............
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby íbbi_ » Wed 13. Feb 2008 16:55

ég hef dílað við nákvæmlega það sama í tveimur 730 v8, annar E38 og hinn E32

í E32 bílnum voru stíflaðir hvarfakútar,

mig grunaði þetta þegar E38 bíllin fór að láta sona, fór með bílin í B&L og fékk þau svör að það væru stíflaðir hvarfar,

þegar ég byrjaði að tæta kom svo í ljós að það var í fínu lagi með hvarakútana og það var farin oxygen sensor,

s.s sömu afleðingar að því virtist, þ.e.a.s kraftleysi, röng blanda endalaus bensíneyðsla og almennt volæði

E38 lét þó öllu verr, hann fór með hálfan tank úr mos og niður í bæ.. og til baka, komst ekki upp brattar brekkur og angaði eins og ástarafkvæmi bensíndælu og útigangsmanns
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 3 guests