Sælir,
Nú hefur útvarpið í bílnum mínum verið til vandræða í soldin tíma (átti það til að detta út, og ég varð að aftengja rafgeyminn til að ná því í lag aftur). Nú er það þannig að ef ég hækka allt í botn þá heyri ég tónlist en ef ég hef útvarpið stillt á eðlilegum styrk þá heyrist ekkert nema bjögun.
Skilaboðin frá B&L eru sú að það þurfi líklega að skipta út útvarpinu í heild sinni og það verður líklega dýr pakki!
Hafið þið einhverja hugmynd um hvað gæti valdið og hvort hægt sé að laga svona án þess að skipta bara út tækinu?
Nb, þetta er E39 M5, 2003 módel.
Kv.
E_B


