bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 09. May 2025 10:37

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 4 posts ] 
Author Message
PostPosted: Sat 21. May 2005 01:43 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
Sælir!

Ég var aðeins að spá í þessu sama og var hérna nýlega í umræðunni með hvaða bensín er best að nota.

Það hefur verið notað 98okt m/blýi á minn bíl og ég hef líka notað það, en mér finnst það svolítið skrítið þar sem hann er ekkert með háa þjöppu(9.00:1 eftir því sem ég best veit).

Þess vegna var ég að spá í, er eitthvað fleira en þjappan sem spilar inní hvort það þurfi háa oktantölu og/eða blý?

Ég væri a.m.k. alveg til í að minnka aðeins kostnaðinn með því að þurfa ekki að kaupa dýrasta bensínið auk þess að bæta blýbæti útí(kostar 671kr útí 50L í Esso). Enda er þetta ekki alveg sparneytnasti bíllinn. :)

Og já, við erum að tala um e34 530i með m30 vélinni

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 21. May 2005 09:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Ég skal ekki segja með blýið, en ég veit það að bíll sem er ekki með hærri þjöppu en 9.0 hefur ekkert við þessi auka 3 oktan. 95 er alveg nógu hátt oktan.

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 21. May 2005 16:33 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Ég segi bara kauptu 95 okt á hann. Ég hef gert það við allar mínar M30 vélar.

En þetta með blýið er til þess að ventlarnir brenni ekki, hefur eitthvað með það að gera, man ekki nákvæmlega hvernig þetta er, en smyr ventlasætin að mig minnir. Sel það ekki dýrara en ég man það. Ég hef notað blýlaust bensín síðan hætt var að selja blýbensín. Hef ekki orðið var við neitt. En best væri náttúrulega að nota þetta þannig að setja blýbensín á hann kannski í 4 hvert skipti eða svo.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 21. May 2005 16:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Í þau fáu skipti sem ég setti 95 oktana á hann og engan blýbæti, þá fannst mér hann eyða töluvert meira.

Kannski hefur skinnkufóturinn verið að valda því frekar en benzínið.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 4 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group