Búið að vera meira vesenið með viðgerð á þessum..
Eins og stendur ofar í þræðinum fór bíllinn í TB og þeir segja að ventlar á cyl 2 og 3 séu brunnir.
Mér er ráðlagt af mörgum að finna bara nýtt hedd í staðinn fyrir að skipta um ventla í þessu heddi og ég geri það. Finn flott hedd á eBay í byrjun maí og kaupi það og læt senda það á klakann með ShopUsa.
ShopUsa gleymir hluta af sendingunni og þetta tefst alltsaman og ég er loksins kominn með heddið í hendurnar og allt sem því fylgir núna í lok júní.
Bifvélavirkinn sem er að laga þetta fyrir mig (slapi hér á spjallinu) kippir heddinu af áðan og segir mér að allir ventlar séu bara í stakasta lagi og það var heddpakkningin sem væri farin (og ekki í fyrsta sinn greinilega, hann sagði að þetta væri einhver algjör sóða cheap-o pakking sem væri farin að blása út á fjölmörgum stöðum).
Svo ég hefði getað sparað mér nýja heddið (og peninginn sem fór í að láta TB kíkja á þetta fyrir mig

)
Þannig að bíllinn væri löngu kominn í lag ef TB hefði komið með rétta bilanagreiningu. Svekk
En allavega bíllinn verður orðinn reddí núna um helgina og kominn með læst drif í þokkabót

Bara verst að ég get ekkert keyrt hann almennilega næstu tvær vikur þar sem ég fer til útlanda á mánudaginn
