Þekkingarleysi á diesel - málið leyst!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby Geysir » Wed 05. Sep 2007 11:46

Er þetta ekki bara normalt?

Patrolinn minn er svona líka í byrjun eftir að hafa staðið yfir nótt.
Meina þetta er dísel, þetta er gróft. Hann er bara einfaldlega kaldur hjá þér.
Það þætti mér skrýtið ef díselbílar myndu ekkert reykja í byrjun.
Sést illa á mynd, en þarna dró fyrir sólu þegar Pattinn var staðinn upp brekkuna
Image :lol:
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.

Postby Dóri- » Wed 05. Sep 2007 14:16

lenti líka í þessu með minn 320d leitaði heillengi að lausn og fann loksins út frá mikilli leit að það getur verið gott að hreinsa PCV ventilinn sem er öndunin ofaná vélinni, þeir í B&L hafa aldrei átt síuna sem á að vera þarna þannig að ég þreif hana bara með bremsuhreinsi.

Munurinn var ótrúlegur fór frá því að ganga eins og traktor í það að vera þæginlegt marr.


Einnig getur verið gott að þrífa EGR ventilinn sem er framaná inntakinu á vélinni, þetta pakkast af sóti og olíu á furðulega stuttum tíma.
(endaði bara með því að ég gelti bara EGR ventilinn alveg hjá mér til að losna við þetta, enda er þetta bara mengunarvarnarbúnaður)


Gæti líka verið að þú sért að nota of þunna mótorolíu og hann er ekki að ná upp olíuþrýsting strax ? ég prófaði einusinni 5/30w olíu á minn og það var bara slæmt... ég skipti strax í gömlu 10/40w olíuna.


Prófaðu einnig að skipta um hráolíusíuna...
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby gunnar » Wed 05. Sep 2007 14:35

Djöfulsins vesen er á þessum grútabrennurum :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Dóri- » Wed 05. Sep 2007 14:45

gunnar wrote:Djöfulsins vesen er á þessum grútabrennurum :lol:


Samt svo gersamlega þess virði, lenti í rosalegu veseni með minn og hann var eiginlega aldrei í lagi, ef það sé einhver bíll sem ég sé eftir þá er það hann.

Verst að hann endaði dagana sína með benz rusl í hliðina og svo á gám þar sem hann dó...

Þetta er einn af þeim bílum sem eru með karakter...
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby gunnar » Wed 05. Sep 2007 14:51

Verð reyndar að játa að mig dauðlangar í dísel bmw, annað hvort 320d eða 530d.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Wed 05. Sep 2007 14:53

gunnar wrote:Verð reyndar að játa að mig dauðlangar í dísel bmw, annað hvort 320d eða 530d.


hlakka til að fá minn :naughty: 8)
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby gunnar » Wed 05. Sep 2007 14:59

Skil það, ert kominn með fullkomið combo hjá þér. Mikið skemmtilegra að mínu mati heldur en M5inn, núna ertu með fínann daily og svo bíl til að djöflast á með honum 8)

Ertu að flytja þennan e46 bíl inn eða ?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Wed 05. Sep 2007 15:30

Jamm það er verið að flytja inn fyrir mig :) touring, lúgu, leður, sportsæti og eiginlega bara allur pakkinn
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby thisman » Wed 05. Sep 2007 15:42

Já, ég er alveg sannfærður um að þetta er ekki eðlilegt. Kannski ef ég væri með 15 ára gamalt tæki en þegar ég er á 2,5 ára gömlum BMW þá skal bara ekki vera eðlilegt að skapa þokubelti í kringum sig á hverjum einasta morgni (þegar útihitinn er meira að segja vel yfir 0°C) og missa fyllingarnar úr tönnunum sökum víbrings. Ef svo er þá verð ég fyrir miklum vonbrigðum! Get þá ekki ímyndað mér hvernig hann mun koma til með að hegða sér í vetur þegar það verður kalt á nóttunni. Annars þá prófaði ég í morgun að stíga út úr bílnum og skoða þennan blessaða reyk og hann er miklu hvítari en mér fannst úr baksýnisspeglinum. Þar sem liturinn á reyknum er víst eitthvað atriði þá er best að taka fram að hann er hvítur en ekki blár eins og ég taldi áður. Annars ætla ég að skoða það aftur í fyrramálið, maður er ekki sá skarpasti á þessum tíma dags.

Þakka annars ráðin varðandi hreinsunina á þessum síum. Það myndi þó þýða að ég þyrfti að opna húddið og actually gera eitthvað en þekking mín á því svæði takmarkast í raun við þau verk sem maður þarf engin sérstök áhöld til að framkvæma :) Veistu nokkuð um einhverjar imbaheldar leiðbeiningar til að framkvæma þessa aðgerð sem þú lýstir?

Getur annars einhver sagt mér hvort að þegar rætt er um "injector" á spjallborðum erlendis þá sé það sama apparatið og þegar við tölum um "spíss"?

Annars sýnist mér enn sem komið er að það eina sem ég get gert sé að bíða eftir þessum blessaða tíma hjá TB og sjá hvort að spíssarnir séu virkilega að virka rétt eða ekki.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby íbbi_ » Wed 05. Sep 2007 16:07

AMG hérna á spjallinu átti 320d 03 sem var með þrálátt sona vesen, einmitt hristi fyllingarnar úr tönnunum í lausagangi eftir kaldræsingu.. og flr
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Dóri- » Wed 05. Sep 2007 16:23

thisman wrote:Veistu nokkuð um einhverjar imbaheldar leiðbeiningar til að framkvæma þessa aðgerð sem þú lýstir?


Nei ég man ekki hvar ég fann þetta en ef að það sé lítið verkvit þá mæli ég bara með TB eða BogL.
Fyrst að reykurinn er ekki blár þá er það líklegast ekki PCV...
Myndi ath hvort það sé búið að skipta um hráolíusíuna...

Lenti reyndar aldrei í að það væri eitthvað óeðlilegt magn af hvítum reyk...
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby Kull » Wed 05. Sep 2007 16:28

Það að bíllinn reyki eða hristist mikið við kaldræsingu er alls ekki eðlilegt. Er kannski eðlilegt á einhverju japönsku landbúnaðartæki en ekki eðal BMW :wink:

Myndi láta verkstæði kíkja á spíssana.
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!
User avatar
Kull
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1505
Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Location: Seltjarnarnes

Postby thisman » Wed 05. Sep 2007 19:16

Ég er búinn að komast að þeirri niðurstöðu að ég er algjörlega vanhæfur að greina lit á reyk. Núna eftir vinnudaginn fannst mér hann vera blár..
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby ValliFudd » Thu 06. Sep 2007 10:32

vesenið hjá burgerking var nú annað... eftir viðgerðir og útskiptingu á spíssum.. lagaðist þetta.. En fór svo aftur að verða leiðinilegt..
Verkstæðið sem hann fór á sagði spíssa ónýta og vildi skipta um fleiri :lol: Þá var húddið opnað.. og Hannes (burgerking) tók nú bara eftir því að einhverjir spíssar voru laflausir.. hann skrúfaði þá í og þá var allt komið í lag.. :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby JonHrafn » Thu 06. Sep 2007 12:36

Gamli 320d minn byrjaði að vera leiðinlegur í gang kaldur, byrjaði síðan að bræla eins og hann fengi borgað fyrir það kaldur.

Ástæðan var ónýt olíuskilja. Kann nú varla að segja frá þessu, en afleiðingin var að túrbínan suckaði smurolíu og brenndi hana þess vegna brælaði hann svona.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

PreviousNext

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests