Kíkti í Nesdekk og var sagt að ég ætti að nota eitthvað af eftirfarandi undir bílinn.
245/45-17
225/55-16
215/60-16
Nú ætla ég að spyrja eins og bjáni, en hvað þýða þessar tölur? 17 er nú líklega bara að þetta er dekk fyrir 17" felgur. En hvað þýða fyrstu tvær stærðirnar (t.d. 245/45)? Og hvernig matchar maður þessu við felgurnar (svo dekkin passi nú örugglega á felgurnar)?
Einnig, komast 16" felgur undir E39 M5? Annars held ég haldi mig við 17".
Nesdekk áttu hinsvegar engar felgur. Einhver staður sem þið mælið með til að versla felgur hér heima? Eða er kannski best að reyna að finna þetta á netinu? Lýst mjög vel á Style 66 felgurnar og myndi vilja reyna að redda mér svoleiðis.
Kv.
E_B



