Sælir snillingar,
Miðstöðin í bílnum hjá mér (1990 E34) er biluð. Lýsti sér þannig að fyrst var hún bara virk á fullum styrk og svo hætti hún alveg að virka. Ég ætlaði að fara að skipta um mótstöðu (sword) hjá mér, enda passar bilanalýsingin við það...
En svo ætlaði ég að nota tækifærið og skipta um perur í leiðinni í panelnum og þegar ég tek hann í sundur, sé ég að barkinn sem stýrir kraftinum í miðstöðinni er ekki að grípa þegar takkanum er snúið. Sjá myndir.

Panellinn

Barkinn ætti að liggjar þarna... Þarna á þessu hvíta er skrúfugat sem ekkert er í? Væntanlega ætti þriðja stykkið að fara þarna..? Annars veit ég ekki..

..og þetta unit snýst þegar takkanum er snúið og þar með strekkist á barkanum. En þetta plast stykki grípur ekki í neitt þegar maður snýr honum, þannig að ekkert gerist.

Hérna er svo hægt að sjá hvernig þessi tvö stykki eru hreyfanleg...
Á nokkur hérna myndir aftan á svona dæmi svo ég geti borið saman við? Mér gengur ekkert að finna myndir að aftan - menn vilja alltaf sýna að framan verðu
