Eftir að hafa verið alltof lengi bíllaus keypti ég mér loksins þennan dýrindis E34 af honum Sæma. Mig hefur alltaf langað til þess að eignast svona bíl eftir að nágranni minn þegar ég var 5 ára átti glænýjan E34 540. Fannst það vera flottasti bíll sem ég hafði nokkurntíma séð.
Allavega hérna er fæðingarvottorðið
BMW 525i
árg. 1991
M50B25
Beinskiptur
Islandgrün metallic
Dökkbrún leðurinnrétting (Brasil leder 0397)
Order options
no. Description
288 LT/ALY WHEELS
314 HEATED WINDSCREEN WASHER NOZZLES
320 MODEL DESIGNATION, DELETION
354 GREEN STRIPE WINDSCREEN
401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC
411 WINDOW LIFTS, ELECTRIC
415 SUNBLIND FOR REAR WINDOW
423 FLOOR MATS, VELOUR
428 WARNING TRIANGLE
472 CENTER ARMREST FRT DRIVER/PASS
498 HEADRESTS IN REAR, MECHANIC. ADJUSTABLE
500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING
510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM
520 FOGLIGHTS
556 EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY
708 M-SPORT LEATHER STEERING WHEEL II
801 GERMANY VERSION
954 PREISAB.LEHNENTASCHE/LEDER (Veit einhver hvað þetta er? Hef svona lúmskan grun um að þetta séu hólfin á sætisbökunum en er ekki alveg viss)
Langar að gera nokkrar breytingar svona á næstu mánuðum og þar má helst nefna: Shadowline-a, einhverjar flottar felgur fyrir sumarið, M Parallel koma sterklega til greina, fá LSD í hann og svo einhvern tíma í framtíðinni langar mig að fá á hann V8 húdd og nýru en ég sé það ekki alveg gerast á næstunni.
Smellti nokkrum myndum af honum áðan sem komu ekki vel út, slöpp myndvél + lítil sem engin reynsla = Ekki góðar myndir. Hélt nú samt ég hefði verið að smella einhverjum verðlaunamyndum þangað til að ég setti þær inn í tölvuna
Kveðja, Unnar.