Fer í mössun næstu helgi hjá Glitrandi. Það þarf sennilegast að sprauta einhverja boddí hluta á bílnum, en ég bíð mjög spenntur eftir því að sjá niðurstöðurnar. Ætla að reyna að tala hann í að taka einhverjar 50/50 myndir, því ég hugsa að þær verði rosalegar.
Svo er fullur kassi af varahlutum sem fara í hann 3 september þegar að bíllinn fer í smá aðhlynningu hjá eðalbílum. Þetta eru mest slithlutir í stýrisbúnaði að framan. Þegar þeir eru komnir í þá fer hann í skoðun þar sem ég reikna fastlega með því að hann fái engar athugasemdir og þá fara hlutirnir að róast.
Búja, Bilstein!
Eftir öll þessi herlegheit líða hjá, þá taka rólegri hlutir við. Innréttingin í bílnum hefur lifað betri tíma en er þó fjarri því að vera slæm. Hér er það sem ég vil gera við hana á næstu mánuðum:
- Laga saumsprettu í sæti farþegamegin
- Kaupa nýjar mottur (reikna fastlega með því að fara í OEM beige - langar í svart en held að það komi ekki sérlega vel út)
- Laga naglarispur á ákveðnum stöðum, þarf annaðhvort að vefja þessi svæði, t.d. með CF, eða skipta þeim út. Hvernig haldið þið að CF interior með beige leðri kæmi út? Ég er ekki alveg seldur þar.
- Skipta um lok á öskubakka ($$$, útaf einhverri absúrd ástæðu)
- Gírhnúi - 5 spd ZHP
- Skipta út hátalara farþegamegin
- Djúphreinsa teppi
Ný framrúða er í pöntun í þokkabót. Allt að gerast!
Tók mig síðan til og tók 2.5i merkin af hliðinni. Finnst það satt að segja mikið lýti að hafa þau þarna, enda hefur það ekki verið venjan síðustu ár hjá BMW þar til þeir fóru að framleiða bíla í USA, eftir því sem ég best veit. Bölvaðir. Auðvelt ferli fyrir þá sem vilja gera svipað við sína bíla, skrifaði DIY um þetta fyrir mörgum árum
hér.
TL;DR: Tannþráður + hárblásari + WD-40, svo létt mössun. Bendi mönnum svo á
DIY safnið okkar sem mætti alveg vera stærri m.v. fjölda kunnáttumanna hérna.
Ætla svo að reyna að taka einhverjar ásættanlegar myndir eftir mössunina.